Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.11.1981, Qupperneq 20

Ægir - 01.11.1981, Qupperneq 20
Mynd 7. / vinnslusal frystihúss. (Ljósm. H.R. Bárðarson). Um það að framleiðandi í sölusamtökum sé fjar- lægari markaðnum og skorti þekkingu á eðli hans og upplýsingar um markaðstækifæri er það að segja að það er í meginatriðum rangt. Það eru litlar likur á þvi að framleiðandi, sem selur beint á markað erlendis, eða i gegnum sjálfstæðan útflytj- anda, heyri nokkurn tíma um meira en brot af því, sem að sá sem er í sölusamtökum heyrir. Ég sagði litlar líkur, en það þarf ekki að vera svo. Það er mögulegt að framleiðandi geti varið það miklum tíma og peningum í að kynna sér markaðsmál að hann standi jafnfætis þeim sem eru í sölusamtökum. En ekki þekki ég nú þann fram- leiðanda, sem hefur efni á því. Ég ræði ekki meira um þetta atriði. Skýrslan gefur ekki frekari tilefni til þess. Gaman hefði hins vegar verið að ræða um fleira af þessu tagi, eins og t.d. harmagrátinn framleiðandans i útvarpinu um daginn yfir þvi að ekki skuli þúsundir manna fást við útflutninginn eins og innflutninginn, með þeim kostnaði sem það hefði nú í för með sér. En að lokum þetta um þetta mál: það hafa margar þjóðir farið, og hyggjast fara, i slóð okkar í sölu á fiskafurðum, enda hygg ég að óvíða hafi okkur tekist betur. En ég veit ekki til þess að neins staðar hafi verið hugleitt að læra af okkur á sviði innflutnings. Það mætti kannski draga af þessu nokkurn lærdóm. Ekki aflaaukning. Ein af meginniðurstöðum skýrslunnar er að afli muni ekki aukast á íslandsmiðum að nokkru marki, hvorki í bráð né lengd. í fljótu bragði virð- ist manni þetta vera í svartsýnna lagi. Ýmislegt hefur farið betur en á horfðist nú síðustu árin. Fiskigengd hefur verið meiri en menn áttu von á og margt virðist vera á betri leið en ætlað var. Það hefði þvi verið ástæða til þess að í skýrslunni kæmi fram frekari rökstuðningur fyrir þessu áliti en fram kemur. Það kann að vera að í skýrslunni sé tekið tillit til þeirrar fjölgunar sem er að verða á sel, en samkeppni sels og veiða manna fer vaxandh í skýrslunni er ekkert um það getið. En ég hygg að þegar tekið er tillit til fjölgunar selsins megi ætla að það sé nokkuð rétt niðurstaða í skýrslunni að ekki megi vænta aflaaukningar, og að raunar geti svo farið áður en langir tímar líða að afli dragist saman. En þar sem ekki er fjallað um selinn í skýrsluniti ieyfi ég mér að fara nokkrum orðum um þetta vandamál. Mikið verðfall hefur orðið á selskinn- um á síðustu árum. Þetta hefur leitt til þess að sel- veiðar hafa lagst svo til niður. Veiðarnar héldu selnum áður i sæmilegu jafnvægi, en síðan þær lögðust niður hefur honum fjölgað stórlega. Ætla má að honum geti fjölgað um 5% eða jafnvel meira á ári hverju. Hér við iand eru samkvæmt talning' um sennilega einhvers staðar á milli 40 og 50 þúsund selir, landselir og útselir. Selurinn lifir fyrst og fremst á fiski, yfirleitt smærri fiski. Rannsóknir annars staðar en hér við land hafa leitt í ljós að landselurinn éti að jafnaði um 2 Iestir á ári, en útselurinn um eða yfir 3 lestir. Gera má ráð fyrir að 60 — 70% af þessari fæðu séu nytjafiskar. Það má því búast við að selurinn éti allt að 60 þúsund lestir af nytjafiski árlega. Við það bætist að þetta er yfirleitt ungur fiskur, sem mundi að jafnaði tvö- faldast eða jafnvel þrefaldast að þyngd áður en hann yrði veiddur. Árlegt veiðitjón af völdum sels- ins er því yfir 100 þúsund lestir og jafnvel langt þar yfir. Með þeirri aukningu sem nú er talið að verði a sel við landið eykst þetta veiðitjón um að minnsta kosti 5 þúsund lestir á ári. Mér þykir ekki ólíklegt að nefndarmenn hafi haft þetta í huga þegar skýrslan var samin. Það er svo aftur annað mál hvort ekki þarf að taka á þessu máli og koma í veg fyrir þessa miklu fjölgun sem er að verða á selnum. Það kemur einn- ig inn á annað vandamál fiskiðnaðarins, selorma' vandamálið. Selurinn er aðalhýsill ormsins, sem algengur er í fiski hér við land. Orminum verður ekki haldið í skefjun að nokkru marki með neinum þekktum aðferðum, nema með því að halda fjölda 596 — ÆGIR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.