Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1981, Síða 38

Ægir - 01.11.1981, Síða 38
Grímur Valdimarsson, gerlafræðingur, Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins: Áhrif mismunandi blóðgunar og slægingar á gæði þorsks I. Inngangur í nýlegri grein í Ægi eftir Kristján Kára Jakobs- son, skipaverkfræðing (1) er rætt um meðferð fisks um borð í íslenskum skuttogurum. Er greinin byggð á athugunum sem höfundur gerði sumarið 1980 á tilhögun við aðgerð, slægingarafköstum o.fl. (2). Þessar athuganir sýndu, að meðferð fisksins var langt frá því að vera viðunandi. I sambandi við tilraunir með geymslu fisks í gámum um borð í togaranum Ásgeiri RE. 60 s.l. sumar, gafst tækifæri til að gera samanburðartil- raunir með sum þeirra atriða sem drepið er á í áðurnefndri grein. Verður greint hér frá niðurstöð- um þeirra tilrauna, en þær hafa áður birst í Tækni- tíðindum Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins (3). II. Almennt um blóðgun og slægingu í ferskfiskreglugerðinni (4) er að finna allná- kvæma forskrift að því hvernig fiskur skuli blóðg- aður og slægður. í 45. grein segir: „Allan fisk skal blóðga, strax og hann hefur verið innbyrtur“. Síðan segir: ,,Séu þorskfiskar blóðgaðir þannig, að skorið sé á slagæðina, sem liggur innan við lífodd- an frá hjartanu fram i tálknin, eða á lífæðina, þar sem hún liggur fast við hrygginn upp af tálknaop- unum. Sé þess gætt, að kviðarhol fisksins opnist ekki, þannig að lifur, hrogn eða önnur innyfli renni ekki fram úr því“. Þá er kveðið mjög skýrt á um slæginguna (46. grein): „Fisk skal ekki slægja fyrr en honum hefur blætt út“. Þannig er í raun bannað að blóðga og slægja fisk samtimis. í hinni þekktu bók Asbjorns Johannesen um fiskverkun (5) segir, að við blóðgun sé mjög mikil- vægt að skadda ekki hjarta fisksins þar sem það með slætti sínum hjálpi til við að losa blóð úr fisk- bolnum. Þess vegna verði fiskinum að blæða áður en hann er slægður. íslenska reglugerðin byggir þannig á sömu forsendum og þarna koma fram. Ekki eru allir sammála þessari röksemdafærslu. Huss og Asjeno (6) báru saman blóðlit í flökum, sem unnin voru úr fiski sem gert var að á ýmsa vegu. Þeir komust að þeirri niðurstöðu, að það séu dauðakippir fisksins, sem losi blóðið úr bolnum eftir að skorið hefur verið á hálsæðarnar, fremur en sláttur hjartans. Þessa ályktun drógu þeir m.a. af því að þeim reyndist best sú aðferð að blóðga og slægja fiskinn samtímis. Einungis lifandi þorskur var notaður í tilraunirnar (6). Það eru einkum tvö atriði sem allar tilraunir með blóðgun sýna. í fyrsta lagi, að því fyrr sem fiskur er blóðgaður eftir veiði, því betri litur, og > öðru lagi að best sé að láta fiskinum blæða út í rennandi sjó eða vatni (t.d. 5, 6, 7). Auk þess er talið, að góð kæling strax eftir blóðgun hjálpi til við að losa blóð úr vöðvanum vegna samdráttar háræðakerfisins (8). Blóðlitarefni í fiskvöðva valda ekki einungis út- litsgalla. Þau örva einnig myndun þráa og annarra bragðvondra efnasambanda (9). Eitt það athyglisverðasta sem fram kom í athug- unum Kristjáns Kára var hve mismunandi aðgerðarfyrirkomulag reyndist vera í íslenskum skuttogurum. Skiptast aðgerðarkerfin í tvo stóra flokka, skip með blóðgunarkör og skip án blóðg- unarkara. Þar sem blóðgunarkör eru notuð, er fiskinum látið blæða í körunum áður en slægt er, en í skipum án blóðgunarkara er yfirleitt blóðgað og slægt samtimis, þ.e. án þess að sleppa fiskinum á milli. Að öðru leyti er fyrirkomulagið við aðgerð- ina mjög misjafnt og aðgerðarkerfin oft hönnuð eftir séróskum hverrar áhafnar (2). 614 — ÆGIR

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.