Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1982, Síða 26

Ægir - 01.12.1982, Síða 26
hefðbundnum búnaði, en opnum bjargbátum. Yfirbyggðu björgunarbátarnir eru hinsvegar mun betri björgunartæki, þegar þeir eru komnir óskemmdir frá skipi. í nýjum 3. kafla alþjóðasamþykktarinnar um öryggi mannslífa á hafinu frá 1974, er gert ráð fyrir föstum yfirbyggðum bjargbátum á flestum gerðum skipa, 500 Brl. og stærri. Þessi 3. kafli er þó enn ekki endanlegur, en frá honum verður gengið endanlega á fundi í Alþjóðasiglingamála- stofnuninni í London næsta vor (1983). Ég hefi, aðspurður, áður bent á það, að ástæðan fyrir þvi, að fá íslensk skip eru þúin yfirbyggðum föstum bjargbátum, er fyrst og fremst sú, að engin ný farmskip hafa á síðari árum verið byggð fyrir íslenska kaupendur. Ég hefi hinsvegar lýst því yfir opinberlega, m.a. í grein í SIGLINGAMÁL, að siglingamálastjóri hafi gert um það kröfu, að nýtt strandferðaskip Skipaútgerðar ríkisins, yrði búið föstum yfirbyggðum björgunarbátum. Þessa kröfu setti Siglingamálastofnun ríkisins fram á þeim grundvelli, að gerð bjargbáta þarf að fá viður- kenningu siglingamálastjóra, en auk þess væri varla hægt að gera minni kröfur til skips íslenska ríkisins en þær, sem fljótlega myndu væntanlega verða gerðar til annarra íslenskra aðila. — Þessa kröfu setti siglingamálastjóri fram á fundi með fulltrúum Skipaútgerðar ríkisins haustið 1981, en á teikningu frá 1. júlí 1982 hafði ekki verið tekið tillit til þessarar kröfu siglingamálastjóra. Skipaútgerð ríkisins leitaði þá til samgöngu- ráðherra, sem úrskurðaði, að þetta skip yrði ekki búið yfirbyggðum föstum björgunarbátum. Skip þetta verður reyndar væntanlega undir 500 Brl. að stærð, og alþjóðasamþykktin nær því ekki til þess, vegna stærðarinnar. í ljósi þessarar ákvörðunar samgönguráðherra, verður þó að telja ósennilegt, að settar verði íslenskar reglur um yfir- þyggða fasta bjargbáta á skip undir 500 Brl. að stærð. Um skyndiskoðun á öryggisbúnaði íslenskra skipa er það að segja, að fyrir allnokkrum árum fékkst heimild til að ráða skipaskoðunarmann við Skipaskoðun ríkisins til að framkvæma skyndi- 634 — ÆGIR

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.