Ægir - 01.12.1982, Blaðsíða 26
hefðbundnum búnaði, en opnum bjargbátum.
Yfirbyggðu björgunarbátarnir eru hinsvegar mun
betri björgunartæki, þegar þeir eru komnir
óskemmdir frá skipi.
í nýjum 3. kafla alþjóðasamþykktarinnar um
öryggi mannslífa á hafinu frá 1974, er gert ráð
fyrir föstum yfirbyggðum bjargbátum á flestum
gerðum skipa, 500 Brl. og stærri. Þessi 3. kafli er
þó enn ekki endanlegur, en frá honum verður
gengið endanlega á fundi í Alþjóðasiglingamála-
stofnuninni í London næsta vor (1983).
Ég hefi, aðspurður, áður bent á það, að ástæðan
fyrir þvi, að fá íslensk skip eru þúin yfirbyggðum
föstum bjargbátum, er fyrst og fremst sú, að engin
ný farmskip hafa á síðari árum verið byggð fyrir
íslenska kaupendur. Ég hefi hinsvegar lýst því yfir
opinberlega, m.a. í grein í SIGLINGAMÁL, að
siglingamálastjóri hafi gert um það kröfu, að nýtt
strandferðaskip Skipaútgerðar ríkisins, yrði búið
föstum yfirbyggðum björgunarbátum. Þessa kröfu
setti Siglingamálastofnun ríkisins fram á þeim
grundvelli, að gerð bjargbáta þarf að fá viður-
kenningu siglingamálastjóra, en auk þess væri
varla hægt að gera minni kröfur til skips íslenska
ríkisins en þær, sem fljótlega myndu væntanlega
verða gerðar til annarra íslenskra aðila. — Þessa
kröfu setti siglingamálastjóri fram á fundi með
fulltrúum Skipaútgerðar ríkisins haustið 1981, en á
teikningu frá 1. júlí 1982 hafði ekki verið tekið
tillit til þessarar kröfu siglingamálastjóra.
Skipaútgerð ríkisins leitaði þá til samgöngu-
ráðherra, sem úrskurðaði, að þetta skip yrði ekki
búið yfirbyggðum föstum björgunarbátum.
Skip þetta verður reyndar væntanlega undir 500
Brl. að stærð, og alþjóðasamþykktin nær því ekki
til þess, vegna stærðarinnar. í ljósi þessarar
ákvörðunar samgönguráðherra, verður þó að telja
ósennilegt, að settar verði íslenskar reglur um yfir-
þyggða fasta bjargbáta á skip undir 500 Brl. að
stærð.
Um skyndiskoðun á öryggisbúnaði íslenskra
skipa er það að segja, að fyrir allnokkrum árum
fékkst heimild til að ráða skipaskoðunarmann við
Skipaskoðun ríkisins til að framkvæma skyndi-
634 — ÆGIR