Ægir - 01.12.1982, Qupperneq 28
Jónas Bjarnason:
Gæðamál
fiskiðnaðarins
Inngangur.
Gæðamálin eru nú á
hvers manns vörum og
því miður ekki að tilefn-
islausu. Ástand í þeim
efnum er að margra mati
nú bágborið og hefur far-
ið versnandi hin síðustu
ár. Þetta er þeim mun
sárara, sem mönnum
verður ljósara, að fiskafli
er og verður takmarkað-
ur. Verðmæti sjávarafla
verða ekki aukin með umtalsverðum hætti nema
með aukningu gæða og nýtingu svo og nýjum og
verðmeiri afurðum.
í gæðamálum berast okkur næstum daglega
fregnir af tjóni vegna of mikilla galla í afurðum
eða vegna þess, að afurðum þarf beinlinis að
fleygja. Þúsundir kassa af freðfiski eru fordæmdar
í ár og heilu skipsfarmarnir af saltfiski eru endur-
metnir suður í Portúgal, og síðan er samið um
skaðabætur. Þúsundir pakka af skreið eru metnar
í Ítalíuflokka, en eru endursendar eða stöðvaðar
fyrir útskipun vegna þess, að um er að ræða
Afríkuskreið, eða úrkast. Saltsíldaryfirtöku er
ekki unnt að treysta, og dæmi eru um það, að þrá
kryddsíld, sem auk þess hefur verið unnin úr lélegu
hráefni, er metin gallalaus, en er að hluta til ónýt
vara. Fjöldamörg einstök dæmi er unnt að tína til,
en ég hef aðeins minnst á nokkur.
Hvað er að?
Þegar reynt er að skyggnast inn í málin og
kanna, hvað veldur, kemur fyrst upp sú spurning,
hvort ástand í gæðamálum hafi versnað eða ekki.
Við hvað er unnt að styðjast? Miðað við fregnir í
fjölmiðlum hefur ástandið aldrei verið verra. Það
er að sjálfsögðu varasöm viðmiðun. Hvernig er
unnt að kanna fjölda kvartana meðal viðskipta-
vina? Er unnt að gera tölfræðilega könnun á þeim?
Tæplega, og til viðbótar fer fjöldi kvartana eftir
ýmsu öðru en gæðum framleiðsunnar. Markaðs-
ástand hefur þá þýðingu, að skortur eða takmark-
að framboð veldur því, að menn sitja frekar á
strák sínum með kvartanir en safna ólund í stað-
inn, sem brýst út við aðrar aðstæður.
Mjög margir eru þeirrar skoðunar, að ástand í
gæðamálum hafi versnað undanfarin ár. Ég er
einnig þeirrar skoðunar og reyni ekki frekar að
sanna mál mitt hér. Skýringar á ástandinu eru
margvíslegar, og endalaust er unnt að tína einhvert
atriði til. Verulegar breytingar hafa átt sér stað til
sjós, hvað varðar skip, útivistartíma, togtíma,
netafjölda, vinnufyrirkomulag um borð, og svo
mætti lengi telja. í fiskvinnslunni hafa einnig átt
sér stað margvíslegar breytingar, eins og öllum er
kunnugt um.
Ástand ferskfiskmats.
Sjávarútvegsráðherra skipaði svokallað Fisk-
matsráð s.l. vor, en ég á sæti í því ásamt fjórum
öðrum mönnum. Fiskmatsráð hefur nýlega skilað
skýrslu til ráðherra um ástand ferskfiskmats og til-
636 — ÆGIR