Ægir

Årgang

Ægir - 01.12.1982, Side 30

Ægir - 01.12.1982, Side 30
þeir afhenda gallaðan fisk. Þetta er sú leið, sem Kanadamenn eru að áforma um þessar mundir. Þeir hugsa sér reyndar, að ferskfiskmatsmenn verði starfsmenn fiskvinnslunnar, þ.e. kaupenda, en opinberir matsmenn skeri aðeins úr ágreiningi og hafi eftirlit með starfsemi matsmannanna. Endurskipulagning ferskfiskmats og fersk- fiskeftirlits. Til þess að ferskfiskmat komi að tilætluðum notum, verður það að vera nákvæmt og áreiðan- legt, en aðeins öryggi getur tryggt nákvæmt mat undir miklum hagsmunaþrýstingi. Til þess að átta sig á þýðingu ferskfiskmats og eftirlits, verður að setja markmið með starfseminni niður fyrir sér. Fiskmatsráð telur fyrir sitt leyti eðlilegt, að mark- miðin verði svofelld: 1. Að stuðla að sem bestri meðferð hráefnis á sjó og í landi. 2. Að veita sem ábyggilegastar upplýsingar um það hráefni, sem að landi berst. 3. Að vera grunnur að verðlagningu. 4. Að fylgjast með geymslu hráefnis í landi. Til þessa hefur matið nánast eingöngu þýðingu varðandi lið 3. Fyrstu þrjú atriðin varða ferskfisk- mat, en hið fjórða er eftirlit, en sennilega er eðli- legast að sameina þetta, því ferskfiskmatsmaður á að þekkja ástand hráefnis best. Þessvegna geta fiskvinnslustöðvar notfært sér upplýsingar um hráefni eðlilegast með því að virkja matsmanninn, en skv. reglugerð nr. 35/1956 8.gr. er matsmönn- um skylt að fylgjast með geymslu og öllum búnaði þess fisks, sem hefur verið metinn og flokkaður. Ef þessi leið yrði valin, þarf að skoða nákvæmlega hvernig kostnaður af ferskfiskeftirliti skiptist milli hins opinbera og fiskvinnslustöðvanna. Hvaða þýðingu hefur ferskfiskmat? Þegar rætt er um ráðstafanir, sem bætt geta hrá- efnisgæði, hugsa sennilega fæstir til ferskfiskmats- ins. Sumir telja, að það sé ekki beinn þáttur í endurbótum en geti hjálpað til. Ég er þeirrar skoð- unar, að rétt sé að orða þetta öðruvísi. Ef fersk- fiskmat er í ólagi, er næsta tilgangslítið að ætla sér að kippa hlutunum í lag með tilskipunum og fyrir- mælum. Það er augljóst, hvernig t.d. hátt skreið- arverð í Nigeríu hefur leikið skreiðarmat og um leið skreiðarverkun. Að sjálfsögðu er ekki allt leyst með nákvæmu og samræmdu ferskfiskmati, en það er sá grunnur, sem standa verður á. Til þess að unnt verði að byggja upp öryggt og samræmt ferskfiskmat, þarf m.a. að: 1. Taka alla ferskfiskmatsmenn á ný námskeið og löggilda þá upp á nýtt. 2. Semja nýjar reglur um matsflokkun, en regl- urnar verða að vera nýtiskulegar og auðvelda matsmönnum að meta ýmsa alvarlegustu ágalla eins og dauðblóðgun og skemmdir með óyggjandi hætti. 3. Yfirmatsmenn hafi samræmingu og eftirlit að aðalstarfi. 638 — ÆGIR

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.