Ægir - 01.12.1982, Síða 30
þeir afhenda gallaðan fisk. Þetta er sú leið, sem
Kanadamenn eru að áforma um þessar mundir.
Þeir hugsa sér reyndar, að ferskfiskmatsmenn
verði starfsmenn fiskvinnslunnar, þ.e. kaupenda,
en opinberir matsmenn skeri aðeins úr ágreiningi
og hafi eftirlit með starfsemi matsmannanna.
Endurskipulagning ferskfiskmats og fersk-
fiskeftirlits.
Til þess að ferskfiskmat komi að tilætluðum
notum, verður það að vera nákvæmt og áreiðan-
legt, en aðeins öryggi getur tryggt nákvæmt mat
undir miklum hagsmunaþrýstingi. Til þess að átta
sig á þýðingu ferskfiskmats og eftirlits, verður að
setja markmið með starfseminni niður fyrir sér.
Fiskmatsráð telur fyrir sitt leyti eðlilegt, að mark-
miðin verði svofelld:
1. Að stuðla að sem bestri meðferð hráefnis á
sjó og í landi.
2. Að veita sem ábyggilegastar upplýsingar um
það hráefni, sem að landi berst.
3. Að vera grunnur að verðlagningu.
4. Að fylgjast með geymslu hráefnis í landi.
Til þessa hefur matið nánast eingöngu þýðingu
varðandi lið 3. Fyrstu þrjú atriðin varða ferskfisk-
mat, en hið fjórða er eftirlit, en sennilega er eðli-
legast að sameina þetta, því ferskfiskmatsmaður á
að þekkja ástand hráefnis best. Þessvegna geta
fiskvinnslustöðvar notfært sér upplýsingar um
hráefni eðlilegast með því að virkja matsmanninn,
en skv. reglugerð nr. 35/1956 8.gr. er matsmönn-
um skylt að fylgjast með geymslu og öllum búnaði
þess fisks, sem hefur verið metinn og flokkaður.
Ef þessi leið yrði valin, þarf að skoða nákvæmlega
hvernig kostnaður af ferskfiskeftirliti skiptist milli
hins opinbera og fiskvinnslustöðvanna.
Hvaða þýðingu hefur ferskfiskmat?
Þegar rætt er um ráðstafanir, sem bætt geta hrá-
efnisgæði, hugsa sennilega fæstir til ferskfiskmats-
ins. Sumir telja, að það sé ekki beinn þáttur í
endurbótum en geti hjálpað til. Ég er þeirrar skoð-
unar, að rétt sé að orða þetta öðruvísi. Ef fersk-
fiskmat er í ólagi, er næsta tilgangslítið að ætla sér
að kippa hlutunum í lag með tilskipunum og fyrir-
mælum. Það er augljóst, hvernig t.d. hátt skreið-
arverð í Nigeríu hefur leikið skreiðarmat og um
leið skreiðarverkun. Að sjálfsögðu er ekki allt
leyst með nákvæmu og samræmdu ferskfiskmati,
en það er sá grunnur, sem standa verður á.
Til þess að unnt verði að byggja upp öryggt og
samræmt ferskfiskmat, þarf m.a. að:
1. Taka alla ferskfiskmatsmenn á ný námskeið
og löggilda þá upp á nýtt.
2. Semja nýjar reglur um matsflokkun, en regl-
urnar verða að vera nýtiskulegar og auðvelda
matsmönnum að meta ýmsa alvarlegustu
ágalla eins og dauðblóðgun og skemmdir
með óyggjandi hætti.
3. Yfirmatsmenn hafi samræmingu og eftirlit
að aðalstarfi.
638 — ÆGIR