Ægir

Volume

Ægir - 01.06.1985, Page 22

Ægir - 01.06.1985, Page 22
bátabryggjur í öllum hverfunum og bæta þannig löndunaraðstöðu bátanna að nokkru, var eðlilegt, að næsta skrefið yrði að freista þess að framkvæma þetta. Til þess að reyna að fá verki þessu hrundið í framkvæmd, skrifaði Einar G. Einarsson bréf til vita- málastjóra, dagsett þann 11. október 1938. Þar stóð m.a.: „Hér með leyfi ég mér að fara þess á leit, að þér, háttvirti herra vitamálastjóri, vilduð hlutast til um, að hingað yrði sendur hæfur maður (verk- fræðingur) til þess að athuga, hvort tiltækilegt væri að grafa skurð gegnum grjót- og malar- rif það, sem lokar Hópinu, svo minni vélbátar gætu kom- ist þangað inn og notað fyrir bátalægi". Svar við bréfi þessu kom frá stjórnarráðinu 24. október 1938 og var þar samþykkt, að rann- sóknin færi fram. Niðurstöður rannsóknarinnar lágu fyrir í janúar 1939. í þeim var gert ráð fyrir að grafin yrði rás, 10 m breið í botni með fláa á hliðum, og svo langt niður, að botn hennar kæmi í stórstraumsfjöruboð. Yrði þá lengd rásar ca. 160 m, mesta dýpt, sem grafa þyrfti ca. 1.6 m og það magn, sem grafa yrði upp, ca. 1700 m3. Gert var ráð fyrir að nota í fyrstu aðeins handverkfæri til losunar grjótsins og flytja efnið aðeinstil hliðará handbörum eða hjólbörum, enda útilokað að koma bílum við þar. Sama ár var hafist handa við að framkvæma verkið eftir þessari áætlun og eftir þá framkvæmd gátu þeir bátar, sem þá voru til, komist inní Hópið á hálfföllnum sjó og fengið þar örugga legu. Þó þessi bót væri að vísu frumstæð, var almenn ánægja með hana, enda varð hún vísir að meiru. Þrátt fyrir þessa framkvæmd, voru bátabryggjurnar notaðar sem áður við affermingu bát- anna. Bryggjugerð og dýpkun í Hópi Á næstu 5 árum, þ.e. frá 1939 til 1944, höfðu bátarnir lægi í Hópinu, en voru afgreiddir við bryggjurnar. Svo sem vænta mátti, vaknaði fljótt áhugi fyrir að fá afgreiðslu bátanna einnig inn í Hópið, enda hefur afgreiðsla oft verið erfið við bryggjurnar, þar sem skjól var af skorna skammti. ., gj í samræmi við þetta skn Einar G. Einarsson bréf til vl málastjóra dagsett 2/1 1942 bað hann, að verkfræðingur sendur til að gera athuganir^ áætlanir varðandi Hópið' hægt væri að sækja til um styrk ti I þessara bráðnauð ) legu framkvæmda. Sarnajj þessu bar Ólafur Thors Þaverf^ alþingismaður héraðsins r ^ frumvarp til laga á alþingi 1 um lendingarbætur í Grinda'-'^ og var þar stuðst við þá á^r ^ sem gerð var viðvíkjandi Pe" 1942‘ kkt Frumvarp þetta var samp) ^ og framkvæmdir leyfðar 111 ^ bréfi ráðuneytisins dagsettn ^ september 1944. Sama haust ^ byrjað á bryggjugerð í svokal a , Kvíavík, sem er vestast og sy ■■ Hópinu. Næsta sumar var . lengd nokkuð og hækkuð og n<1. hún út á 2 m dýpi um st(árstralin|)o fjöru. Lengd bryggjunnar var g m og breidd 10 m. Kostnaður^ þessa bryggjugerð varð , 120.000 kr., sem reyn° 30.000 kr. fram yfir kostnað áætlun. Var hún strax n11 j notuð, en reyndist fljótlega a Haustið 1944 var gefð áætlun um dýpkun rásarinnar ny jVO og dýpkun Hópsins sjálfs. K°'*'r aður við verk þetta var á*tla . 360.000 kr. Verkið byrjaði sv ^ júní 1945. Breidd rásar við o01( varð um 20 m, en viðyfirborða,g að 30 m og dýpt ca. 2.3 m- er að grafið hafi verið upp sarnh1fi 33.000 m3 og að dýpkunin n‘ kostað 545.000 kr. eða 185- kr. umfram kostnaðaráætlun- Framkvæmdir þessar breY mikið allri aðstöðu í Grinda'0^ þar sem bátarnir, sem enn v litlir, gátu nú yfirleitt farið u rásina, hvernig sem stóð á sjo- 314-ÆGIR

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.