Ægir - 01.06.1985, Page 40
Annað
Eftir að hraðfrystihúsin vctru
komin á staðnum var komin
grundvöllur fyrir beina- og fisk-
mjölsverksmiðju og var þess ekki
langt að bíða að hún væri reist.
Verksmiðjan vinnur nú úr slógi
og beinum sem til fellur frá fisk-
verkendum. Önnur verkefni hafa
verið síld á sjöunda áratugnum
en síðan tók loðnan við. Aðrar
332-ÆCIR
tegundir sem verksmiðjan hefur
unnið eru t.d. spærlingur og
kolmunni.
Bræðslan gengur mjög vel
enda hráefnið oft ekki keypt háu
verði. Núna er fyrirhugað að sett
verði mjög fullkomin hreinsitæki
á reykháfa verksmiðjunnarsvo að
Grindavík verður ekki lengur
peningalyktarpláss.
Mjög lítið er nú hengt upp af
fiski enda markaðurinn í Nígen'u
lokaður. Alltaf hefur samt
eitthvað verið hengt upp en þa^
hefur verið mikið happdrætti-
Stundum hefur aflinn verið mikiH
og hagkvæmt hefur verið að
hengja upp. Önnur ár hefur mark-
aðurinn verið lokaður og verk-
endur setið uppi með skreiðina-
Það sem helst er hengt upp erU
hausar og keila. Keila er ekki
heppileg í annað því að í henni er
oft mikið af ormi. Hausarnir eru
hengdir upp með þaðfyriraugum
að þeir gætu einhvern tímann
selst. Skreiðarbirgðir eru þv'
nokkrar.
Grásleppukarlar eru fáir 3
staðnum. Grásleppan er hér, eins
og svo víða annars staðar tóm-
stundagaman, a.m.k. ekkert sem
máli skiptir.
Fiskverkendur í Grindavík
skilja sig úr vegna þess hversu
mikil samvinnan erá milli þeirra-
Hún virðist þeim í blóð borin og
verkandinn við hliðina er ekki
keppinautur heldur bara annar
verkandi sem sjálfsagt er að lið'
sinna. Það sést e.t.v. best á skip['
ingu síldaraflans, þ.e. að betra sé
að verkandinn hinum megin við
götuna fái síldina en einhver 1
annarri höfn. Annað dæmi um
góða samvinnu er svo kallað
ísfélag Grindavíkur en það rekut
ísverksmiðju sem tók til starfa á
síðasta ári. Eigendurnir eru
útgerðarmenn, fiskverkendur og
sjómenn staðarins.
Fiskverkendur annars staðar á
landinu mættu taka þessa eðli'
legu samvinnu Grindvíkinga sér
til fyrirmyndar. Það er alveg nóg
að þurfa að keppa um markaðina
á erlendri grund, engin ástæða er
til þess að keppa líka heimafyrir-
Á