Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.1985, Síða 44

Ægir - 01.06.1985, Síða 44
samkvæmt lögum Jónsbókar merkir orðið stað, þar sem um er að ræða veiði á landi eða við land. Lúðvík Kristjánsson telur upp í riti sínu íslenskir sjávarhættir II, 326 verstöðvar, allt í kringum landið. Verstöðvarnar eru síðan flokkaðar niður eftir aðstæðum og fyrirkomulagi. Heimaver var það kallað, er róið var úr heimavör. Gagnstætt því var útver, en þá fóru menn með báta sína og áhafnir að heiman og dvöldu í verbúðum meðan á vertíð stóð. í sumum verstöðum voru aldrei verbúðir þótt þar væru aðkomubátar og aðkomumenn, var það kallað viðleguver. Viðleguvergátu verið með tvennum hætti. Annars vegar viðlegubátar, þ.e. aðkomubátar með áhöfnum, en hins vegar viðleguhafnir, þ.e. aðkomumenn, er reru á heima- bátum verstöðvarinnar. Áhafn- irnar bjuggu í heimahúsum í stað verbúða meðan á vertíð stóð og höfðu þar þjónustu. Grindavík var dæmigerður staður fyrir blandað ver, þar sem löngum var allt í senn, heimaver, útver og viðlegurver, enda var Grindavík ein mikilvægasta ver- stöð landsins um aldir, önnur aðalverstöð Skálholtsstaðar, og hvergi á landinu var uppsátur metið sérstaklega nema í Grinda- vík. Frá aldaöðli hafa íbúarGrinda- víkur haft aðallífsbrauð sitt frá sjónum. Þeim skipum er þaðan var róið svipar mjög til annarra er notuð voru í öðrum verstöðvum. Á vetrarvertíð var róið á tólf-, tein- og áttæringum. Á vor og haustvertíð var notast við minni báta, sexæringa og þaðan af minni, allt niður í skektur. Um miðbik 18. aldar voru nálgæt 60 skip í Grindavík, sexæringar upp í teinæringa. Frá sjötta áratug 19. aldar fram á þann áttunda var mikið eymdar- ástand íGrindavík. Lítið fiskaðist og var Grindavík talin aumasta veiðiplássið á Suðurlandi, útróðr- armenn vildu ekki lengur róa þaðan og lagðist þá útgerð stærri skipanna niður en smærri bátum fjölgaði. En Grindavík náði sér aftur á strik er veiði fór að glæðast á ný, árið 1896 eru gerð þaðan út 30 skip flest áttæringar. Algengt var í Grindavík, að áttæringarnir væru tírónir, enda voru þeir margir hverjir í stærra lagi af átt- æringum að vera. Grindavík liggur fyrir opn hafi, þar sem brimaldan gengu óbrotin á land. Stærð og þyn§ bátanna takmarkaðist því lengs um af því, að hægt væri að setla þá á land. Meðal annars af Þellt! ástæðu komu vélar mun seinn3 báta í Grindavík en víða annar- staðar á landinu, þar sem hafnar skilyrði voru betri frá náttúrunnar hendi. Fram til 1910 var róið á áraba um frá Suðurnesjum, en þá var farið að setja vélar í bátana, - staðar nema í Grindavík. Þanga alb' kom fyrsta vélin ekki fyrr en 1926 og 1929 var sett vél í síðasta ára skip Grindvíkinga. Þessir bátar voru uppistaða í flota Grindvi inga fram yfir stríð, lítið var nl11 nýja báta en nokkrir voru endur byggðir, og þá dekkaðir. UpP úr stríði er farið að byggja nýja dekk báta ca. 10 lestir. Það sem ger ! útgerð þeirra mögulega tr Grindavík var, að 1939 var hafb handa við að grafa leið inn Hópið þar sem höfnin er nú. Me tilkomu hafnarinnar þurfti ek lengur að setja bátana, enda var það ekki mögulegt með dekkaða báta vegna þyngdar þeirra; Annað er breyttist með höfninnl var að þá lögðust róðrar niður tra Staðar- og Þórkötlustaðahverfi o? síðan hefur útgerð eingöng11 verið stunduð frá Járngerðaf staðahverfinu. Höfnin var frum; skilyrði þess að Grindavík fen?' þrifist sem útgerðarbær og a ekki færi þar sem í Höfnum en þar lagðist niður blómleg útger sökum hafnleysis. Upp úr 195 tekur útgerð í Grindavík mikin'1 fjörkipp og var þar mikið blóma" skeið allt fram til 1967. Á þessn tímabili voru keypt fjölmörg n> skip. Orsakir þessa blómaskeiðs eru þær helstar að síldveiði jókst mjög fyrir Norður- og Austurland og gerðu Grindvíkingar mikið ut á þær. Fiskigengd varog mikilvl 336-ÆGIR

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.