Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.1985, Síða 50

Ægir - 01.06.1985, Síða 50
síðustu. Verbúðin var ca. 20 m2 (5,6x3,6). Veggir voru tvöfaldir, annað lagið var grjót en hitt torf- strengir, á milli var troðið mold. Þak var úr torfi, tvöfalt, í sumum búðum var haft þrefalt lag, mold var í gólfi. Svefnbálkar voru með hliðum þrír hvorum megin, í þeim var grjót og urðu vermenn því að finna eitthvað mýkra og var ýmist til notað hey, skelja- sandur, lyng eða þang. Eldstæði voru í hverri verbúð, en oft voru erfiðleikar með eldivið, einnig var vatn víða takmarkað. Vermenn höfðu með sér kost að heiman, smjör og annað feit- meti, einnig sýru eða sýrublöndu. Soðningu höfðu þeir og oftast kaffi, en lítið var um kjöt, helst voru það rifrildi er nýttust best í súpu. Kornmatur var af skornum skammti, sérstaklega hjá þeim er voru fjarri kaupstað. Ekki er þetta þó algild lýsing um mataræði, og undantekningarnar æði margar. Yfirleitt var reynt að búa vel að vermönnum hvað varðar mat, og bjuggu þeirvart við lakari kosten margur annar er ekkert átti nema vinnuaflið. Vidhorf ungra sjómanna Hér fer á eftir viðhorf tveggja ungra sjómanna, báðir eru þeir á sautjánda árinu og hafa stundað sjóinn frá fimmtán ára aldri. Það sem fyrst dró þá á sjóinn voru kjörin, þeir sögðu að allir félagarnir hefðu verið búnir að kaupa sér bíl löngu áður en þeir urðu sautján ára. Þó kaupið sé gott þá kosti það sitt að ná í það, vinnuskyldan er 18 tímar á sól- arhring, sex daga vikurnar, „það er nú eitthvað annað en hjá land- kröbbunum". Sjómennskuna kváðu þeir vera púl og erfiði, en sem ekki væri borguð í samræmi við það, þó fólk héldi að þeir væru allir millar, sem lítið þyrftu fyrir lífinu að hafa. En þrátt fyrir allt þá líkar þeim vel á sjónum og geta vart hugsað sér að vinna í landi. Misjafnt væri að vísu á hvernig bát væri róið og hvaða veiðar stundaðar. „Skóli hvað er nú það, það eru bara vitleysingjar sem fara í skóla, þeir sem nenna ekki að vinna og svoleiðis gaukar", þannig er viðhorfið til skólans. Ekki töldu þessir ungu sjómenn það vera til neins að ná sér í indi í sambandi við sjómenn5' una, það væri bara tímasóuH' „það er alltaf hægt að ná se* undanþágu". Auk þessa tö , þeir sig vita að þeir sem f®rl1 Sjómannaskólann kæmu v' gagnslausir til baka, og nefn nokkur dæmi því til stuðning-- Annað hvort hefðu menn SJ° mennskuna í blóðinu, eins þeir, og þá þyrftu menn ekki a fara í skóla, eða ekki, og þá S36 skólinn ekkertfyrir þá gert. XXH Heimildir. Bjarni Sæmundsson: Andvari 1897. Eggert Ólafsson, Bjarni Pálsson. Fer&abók, Um ferðir þeirra á lslan árin 1752-175 7. Lúðvík Kristjánsson: íslenskir sjávar hættir. II. bindi. Lúðvík Kristjánsson: Úr heimiÚ3^ handraða seytjándu og átjándu alda Saga, IX 1971. Erlendur Björnsson: Sjósókn. Sigfús Jónsson: íslenskur sjávarútvegun Eiríkur Alexandersson: GrindaV > ágrip af sögu og staðarlýsing. Sveita stjórnarmál 1974. Ægir. Tímarit Fiskifélagsins. 49. arg- Munnlegar heimildir: Eiríkur Tómas son, Sigurgeir Guðjónsson, v mundur Ingimarsson. Verbúð á ]árngerðarstöðum í Grindavík. Samkvæmt lýsingu Sæmundar Tómassonar lárngerðarstöðum. (íslenskir sjávarhættir II bindi). 342-ÆGIR

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.