Ægir - 01.12.1985, Blaðsíða 51
undirbúningur veiða, þá frá
veiðiaðferðum og veiðum, því
næst frá landtöku og uppsetn-
ingu, frá fiskverkuninni og loks
frá nýtingu fiskisins og verslun
með hann.
Ekki ætti að þurfa að kynna les-
endum Ægis vinnubrögð eða rit-
hátt Lúðvíks Kristjánssonar.
Hvorttveggja er sem endranær
eins og best verður á kosið. Af
heimildaskrá fremst í ritinu
kemur fram, að Lúðvík hefur
verið óþreytandi að leita heim-
ilda og upplýsinga. í bókinni er
feikimikinn fróðleik að finna og
úr honum unnið með þeim hætti
að varla verður um bætt.
Eins og önnur bindi þessa verks
er þetta prýtt miklum fjölda
mynda, korta og skýringarteikn-
inga. Litmyndirnar eru allar
afbragðsvel teknar og gerðar,
sannkölluð bókarprýði, gamlar
Ijósmyndir hafa flestar mikið
heimiIdagiIdi ogskýringarmyndir
og kort gera lesendum auðveld-
ara með að átta sig á ýmsu, sem
frá er skýrt í texta.
Jón Þ. Þór
SKVGGMST UNPHZ
yF/KBOfiTMP
Einn liður í þeirri þjónustu Hampiðjunnar að miðla uppiýsingum um eiginleika
og notkun veiðarfæra, er útvegun og dreifing myndbanda.
Nú bjóðum við fimm áhugaverð myndbönd á kostnaðarverði.-
1. / TILftAUNATANKINUM
2. F/SKUfc íTKOLU
3. F/SKAP MtP PKAGMOT
4. POKSKANCT
5. TOGVBIPAKF/CKJP
Nánari uppiýsingar veitir söludeiid Hampiðjunnar.
HAMPIÐJAN
Box 5136, 125 Reykjavík, sími 28533