Ægir - 01.12.1985, Blaðsíða 47
Hringorma-
vandamál
44. Fiskiþing vekur athygli á,
að sýking helstu nytjafiska af
hringormi hefur aukist mikið.
Fiskiþing telur, að þetta vanda-
mál snerti ekki fiskiðnaðinn ein-
an, heldur þjóðina alla, og beinir
þeirri áskorun til stjórnvalda, að
legga fram fé, til að draga úr sýk-
ingu.
Fiskiþing telur nauðsynlegt að
lögð verði mikil áhersla á upp-
finningu tækja og búnaðar til
sjálfvirkrar hreinsunar á hring-
ormi úr fiski, vegna þess mikla
kostnaðar sem þetta er þegar farið
að valda fiskiðnaðinum.
Fiskiþing vekur athygli á
störfum Hringormanefndar og
þakkar þau. Jafnframt beinir
þingið því til aðila sjávarútvegs-
ins og stjórnvalda að efla stórlega
störf Hringormanefndar með
auknum fjárframlögum.
Veiðiréttindamál
44. Fiskiþing skorar á stjórn-
völd að taka nú þegar upp samn-
ingaviðræður við Grænlendinga
um gagnkvæm veiðiréttindi á
Dohrnbankasvæðinu og kant-
inum NA af því.
Greinargerö:
Tillaga þessi er framborin
vegna örðugleika og ágreinings
um nákvæma staðarlínu (mið-
línu) á þessu svæði.
Reynslan sýnir að skipin þurfa
að hafa ákveðinn hreyfanleika á
þessu veiðisvæði.
Þessu tengist óhjákvæmilega
samstarf um nýtingu loðnustofns-
ins á svæðinu og sú aðstaða, sem
Grænlendingum hefur nú verið
veitt einum þjóða, til umskipunar
á afla sínum, í íslenskri höfn,
þjónustu í olíu og vistum, sem
gerir þeim kleift að stunda veiðar
á umræddu svæði með góðum
árangri.
Reikningar
Fiskifélags íslands
Nefndin tók fyrir aðalreikninga
Fiskifélags íslands 1984.
Nefndin benti á eftirfarandi:
a) að með reikningum Fiskifé-
lagsins verði jafnan birtar saman-
burðartölur frá fyrra ári.
b) Nefndin leggur áherslu á,
að gengið verði frá samningum
um þjónustu á vegum F.í. frá ári
til árs.
c) Nefndin bendirá, aðekki er
starfandi löggilturendurskoðandi
við gerð reikninga Fiskifélagsins.
d) Fjárhagsnefnd leggur til, að
ársreikningur Fiskifélagsins fyrir
árið 1984 verði samþykktur.
Stjórnun fiskveiða
Fiskiþing samþykkir í megin-
dráttum frumvarp um stjórn fisk-
veiða með eftirfarandi breyting-
um:
a) Gildistími verði tvö ár í stað
þriggja.
b) Í9. gr. ergert ráð fyrir veiði-
stöðvun smábáta á línu og hand-
færaveiðum frá 15. nóv.-9.
febrúar.
í stað þess komi stöðvun frá 15.
desember til 15. janúar.
c) Sama regla um veiðileyfi
nýrra fiskiskipa verði látin gilda
jafnt um fiskiskip undir 10 lestum
og yfir 10 lestum, hafi skipið ekki
verið afhent kaupanda fyrir gild-
istöku laganna.
d) Framsalsréttur á aflakvóta
þeirra skipa sem ekki eru gerð út
á botnfiskveiðar verði takmark-
aður verulega.
Fiskiþing telur æskilegt að við
gerð reglugerðar um sóknarmark,
verði möguleikar þeirra báta sem
stunda þorskveiðar með netum
gerðiraðgengilegri meðeinhverri
fjölgun sóknardaga.
Fiskvernd
Fyrst var tekið fyrir tillaga um
endurskoðun á friðaða svæðinu
á Selvogsbanka.
Afgreiðsla nefndarinnar var
svohljóðandi, samhljóða:
Fiskiþing felur stjórn Fiskifé-
lagsins að leita álits Hafrann-
sóknastofnunarinnar á gagnsemi
friðaða svæðisins á Selvogsbanka
(Frímerkið) og friðaða svæðisins
útaf Breiðafirði, og óska eftir að
gerðar verði tillögur til breytinga
ef ástæðureru til.
Afgreiðsla nefndarinnar á til-
lögu um breytta svæðaskiptingu
á dragnótaveiðum er sú að hafna
tillögunni. Samþykkt af öllum
nefndarmönnum nema einn sat
hjá.
Afgreiðsla nefndarinnar á til-
lögu um veiðar innan 12 mílna
úti fyrir Vestfjörðum var sú að
hafna henni. Samþykkt af öllum
nefndarmönnum.
Nefndin leggurtil við Fiskiþing
að þaðfeli stjórn Fiskifélagsins að
óska álits Hafrannsóknastofnun-
arinnar á því hvort um sé að ræða
vannýtt kolasvæði við landið,
sem takmarkastaf landhelgislínu.
Samþykkt af öllum nefndar-
mönnum.
Afgreiðsla nefndarinnar á þrem
tillögum varðandi humarveiðar
er svofelld:
Verði um aukningu á humar-
kvóta á næsta ári að ræða þá
verði henni skipt með jöfnu
magni til núverandi leyfishafa, og
að ekki verði úthlutað leyfum til
nýrra aðila.
44. Fiskiþing samþykkir að
veiðar á ýsu með 6" netum sem
hingað til hafa verið leyfðar á
vetrarvertíð verði miðaðar við 1.
apríl en ekki páska eins og verið
hefur undanfarin ár.
ÆGIR-717