Ægir - 01.12.1985, Blaðsíða 45
I stað nýbygginga hafa verið
gerðar talsverðar endurbætur á
gömlum skipum með endurbygg-
ingu og breytingum þeirra. Sú
hætta er þó jafnan við endur-
bætur á gömlum skipum, að þau,
þrátt fyrir mikinn tilkostnað svari
alls ekki kröfum tímans.
Endurnýjunarþörf íslenska
fiskiskipaflotans er þvf orðin afar
brýn og fer hraðvaxandi með
hverju ári sem líður. Erfið staða
sjávarútvegs hefur undanfarið
takmarkað nauðsynlega endur-
nýjun. Þessu verðuraðbreytasvo
eðlilega rekin útgerð geti endur-
nýjað skipakost sinn.
Endurnýjun fiskiski pastólsi ns
markist af eftirtöldum atriðum:
1. Raunveruleg minnkun flotans
náistfram m.a. með breyttum
reglum og eflingu Úreldingar-
sjóðs.
2. Innlendur skipasmíðaiðnaður
verður að vera samkeppnis-
fær í verði, annars er hætt við
að endurnýjun fari fram að
mestu erlendis.
3. Endurnýjun verður að fara
fram með verulegu eigin fé
útgerðaraðila. Þannig að lán
til endurnýjunar verði ekki
hærri en 60-65 % af kostnaði.
44. Fiskiþingsamþykkiraðfela
tæknideild Fiskifélags íslands að
gera sem fyrst úttekt á aldursdreif-
ingu íslenskra fiskiskipa og þeim
endurbótum sem á þeim hafa
verið gerðar. Stjórn Fiskifélags
Islands kynni þær niðurstöður
stjórnvöldum, alþingismönnum
og almenningi öllum.
Gæði og
meðferð afla
44. Fiskiþing hvetur alla sem
með sjávarföng fara að tryggja
verðmætara hráefni og betri með-
ferð sjávarafla á sjó og í landi með
því að stuðla að eftirfarandi:
1. Að árangursríkasta leiðin til
að auka gæði hráefnis sé að örva
sjómenn til bættrar meðferðar og
verður það best gert með hækkun
verðs á góðum fiski.
2. Að loknum samanburði
matsaðferða verði allt gæðamat
á ferskum fiski fært til svo nefnds
punktakerfis, sem talin er virkari
aðferð en núverandi sjónmat.
3. Að við matá ísuðum fiski úr
kössum eða körum, skuli hvetja
til þess að fiski sé raðað og kvið-
urinn snúi niður.
4. Að stefnt skuli að því að
allur fiskur komi að landi vel
ísaður í kössum eða körum, og sé
lestarrými fiskiskipa vel útbúið á
hagkvæman hátt með tilliti til
þessa. Þess vegna samþykkir
Fiskiþing að fela tæknideild Fiski-
félagsins að hanna í samvinnu við
útvegsmenn hagkvæma lausn á
breytingum lesta fiskiskipa, og
fiskigeymslum í landi til góðrar
geymslu á fiski í kössum eða
körum.
5. Að tvöfalt matskerfi á út-
flutningsafurðum séóþarftogeigi
því afskipti ríkismatsins að hverfa
nema sem úrskurðaraðili, þar
sem sölusamtökin hafa byggt upp
eigin eftirlits- og matskerfi.
6. Þá telur þingið að langur
togtími og útivistartími skipa hafi
afgerandi áhrif á gæði aflans til
hins verra.
7. Þingið leggur til, að við
næstu fiskverðsákvörðun verði
sjómenn skyldaðir til að dag-
merkja allan fisk, sem er í kössum
eða körum.
Hafrannsóknir
Nefndin var sammála um eftir-
farandi:
Staðreynd er, að hafrannsóknir
hér við land eru í algjöru lágmarki
miðað við þörf fyrir þær, þar sem
lífsafkoma þjóðarinnar byggist
fyrst og fremst á fiskveiðum.
Vegna þeirrar staðreyndar
beinir 44. Fiskiþing því til
alþingis og ríkisstjórnar að veitt
verði stórauknu fé til Hafrann-
sóknastofnunar og geri þannig
auknar rannsóknir á hafsvæðum
umhverfis landið og lífríkinu þar
mögulegar.
1. 44. Fiskiþing fagnar þeirri
samvinnu sem fram fór á árinu
milli Hafrannsóknastofnunar og
togarasjómanna og hvetur til að
slík samvinna rannsóknarmanna
og sjómanna verði aukin í fram-
tíðinni. Þingið þakkar sérstaklega
forstjóra Hafrannsóknastofnunar,
Jakob Jakobssyni, fyrir nána sam-
vinnu við aðila sjávarútvegsins.
2. 44. Fiskiþing telur nauð-
synlegt að í stærstu verstöð
landsins, Vestmannaeyjum,
verði stofnað útibú frá Hafrann-
sóknastofnuninni.
3. Fiskiþing hvetur til að gerð
verði víðtæk leit og rannsóknir á
skelveiðisvæðum fyrir Norður-
landi og víðar, og fram fari frekari
rannsóknir á rækjumiðum bæði
á djúp- og grunnslóð umhverfis
landið.
4. Fiskiþing mælir með því að
fram fari skipulögð síldarleit
árlega og liggi niðurstöður fyrir í
upphafi síldveiðitímabils.
5. 44. Fiskiþings felur stjórn
Fiskifélagsins, að beita sér fyrir
því, að merkingar á laxi verði
stórauknar og í framhaldi af því
verði gerðar tilraunaveiðar er
kanni útbreiðslu hans og lífshætti
í íslenskri fiskveiðilögsögu.
Varðskipið Þór
44. Fiskiþing lýsir yfir stuðn-
ingi við þá hugmynd að S.V.F.Í.
fái að halda nafninu á varðskip-
inu Þór, sem það hefur fest kaup
á.
Á þann hátt verði haldið á lofti
nafni fyrsta björgunar- og hjálpar-
ÆCIR-715