Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1985, Blaðsíða 12

Ægir - 01.12.1985, Blaðsíða 12
hafa óhjákvæmilega orðið til þess, að störfum hefur nokkuð seinkað. Starfsemin var að öðru leyti í föstum skorðum. Útvegurvargef- inn út á venjulegum tíma, en störf vegna úrvinnslu á rekstrareikn- ingum hafa tafist nokkuð. Ýmis sérverkefni voru unnin fyrir aðila utan Fiskifélagsins. Eins og getið var í yfirliti, sem lagt var fyrir síðasta Fiskiþing, var tölva félagsins endurnýjuð í lok síðasta árs. Mestur hluti orkunnar á þessu ári hefur farið í að undir- búa vinnslu á þessari nýju vél. Hefur það starf verið mjög um- fangsmikið, þar sem þau voru búin að ganga sér til húðar. Þetta starf hefur tafist enn frekar vegna mannaskipta og tíðra bilana í eldri tölvu. Nýlega var gert samkomulag við sjávarútvegsráðuneytið um aðgang þess og annarra stofnana sjávarútvegsins að hinni nýju tölvu félagsins. Þegar er ákveðið, að ráðuneytið sjálft og Ríkismat sjávarafurða tengist tölvunni, og verði þar með þann hluta sinnar vinnslu, sem hagkvæmt þykir. Þetta skref er að mörgu leyti skynsamlegt, þar sem ýmis gögn nýtast öllum sto'fnunum sameig- inlega. Ætti það að draga úr tví- verknaði við viðhald þessara gagna. Hins vegar þarf að taka afstöðu til ýmissa hliða þessa máls, m.a. um vernd gagna. Þetta hefuróhjákvæmilega íför með sér verulegar breytingar á rekstri tölvunnar. Ljóst er að nokkuð þarf að fjárfesta vegna þessara nýju verkefna, og úti- lokað er að núverandi mannafli anni því aukna starfi, sem þetta hefur í för með sér. Aflatryggingasjóður 1984 í skýrslunni í fyrra um störf Afla- tryggingasjóðs fyrir árið 1983, var þess getið að lögum um alm. deild sjóðsins hefði verið breytt. Með lögum nr. 21 frá 24. apríl 1984 var ákveðið að greiða úr alm. deildinni árið 1984 4% bætur á allt verðmæti afla, sem landað væri innanlands, miðað við lágmarksverð skv. ákvörðun Verðlagsráðs og á skiptaverð- mæti við landanir erlendis. Þessar bætur átti að greiða inn á reikning hvers skips hjá Stofn- fjársjóði fiskiskipa. Með sömu lögum var einnig ákveðið að mótframlag ríkissjóðs árið 1984, færi til áhafnadeildar en ekki hinnar almennu eins og verið hefur allt til þessa. Með framangreindum lögum var í senn starfsemi alm. deildar gjörbreytt frá því sem áður hefur verið, allar götur frá árinu 1949. Með lögum nr. 102 frá 30. júlí 1984 var einnig ákveðið að alm. deildin greiddi 3% verðuppbót á sama stofn, tímabilið 1. ágúst til 31. október 1984. Þessar greiðslur átti að greiða beint til útgerða skipa. Síðar var þessu breytt þannig að greiðsl- urnar voru út árið. Lögum áhafnadeildar og verð- jöfnunardeildar var ekki breytt á árinu svo þær störfuðu með hefð- bundnum hætti. Áhafnadeildin fékk til ráð- stöfunar af útflutningsgjaldi 1984 kr. 164.6 mi11jónir oggreiddi upp í fæðiskostnað sjómanna kr. 176.7 milljónir. Að venju sá áhafnadeildin um greiðslu til líf- eyrissjóða sjómanna og voru það kr. 71.5 milljónir árið 1984, og nú í ár er búið að innheimta kr. 101.8 milljónir. Þess er rétt að geta, að ríkis- sjóður endurgreiddi 37.1 millj.af þeim kostnaði sem lög nr. 102 höfðu í för með sér. í skýrslunni í fyrra var farið nokkuð yfir starfsemi deilda sjóðsins árið 1984 og verður því ekki farið fleiri orðum um það ár en fjallað örlítið um yfirstandandi ár. Lög nr. 12 voru samþykkt á Al- þingi 15. apríl s.l. Þarerm.a. gert ráðfyrirþví, að sjóðurinn fái tekjur árið 1985 af endurgreiddum söluskatti til sjáv- arútvegsins. Alm. deild fái 230 milljónir, verðjöfnunardeild 230 milljónir og áhafnadeild 80 milljónir króna. Þetta gerir samtals 540 milljónir króna. Það er rétt að geta þess strax, að samkvæmt greiðsluáætlun fjármálaráðuneytisins fyrir árið 1985 er þessi upphæð orðin að 430 milljónum króna. Sömu- Staða deilda sjóðsins miðað við 31. október s.l. varsem hér segir: Alm.d. Áhafnad. Verðj.d. Samtals m.kr. m.kr. m.kr. m.kr. Eignir/skuldir 1.1. '85 163 65 + 72 156 Tekjur af útfl.gj. 1.1 .-30.9 153 215 203 571 Endurgreiðsla af söluskatti 213 0 152 365 Tekjur af mótframlagi 0 50 0 50 Samtals 529 330 283 1.142 Ráðstöfun 1.1.-31.10. '85 Vegna1984 94 61 38 193 Vegna1985 376 171 288 835 Samtals 470 232 326 1.028 Þá er til ráðstöfunar nú 1. nóv. 1985 59 98 +43 114 682-ÆGIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.