Ægir - 01.12.1985, Blaðsíða 41
lestir, en öðrum botnlægum fisk-
tegundum verði ekki skipt milli
skiptategunda né veiðitímabila.
Leyfilegur loðnuafli verði
ákveðinn að loknum rann-
sóknum í haust.
Tegundamark með veiðitíma-
bilum
í árslok 1983 var ákveðið að
leyfisbinda allar botnfiskveiðar
og setja aflamark á hvert veiði-
skip. Þessi stjórnunarleið hefir
nú verið til reynslu ítvö ár. Það er
álit fjórðungsþingsins, að hún
hafi reynst illa, haft margvísleg
óæskileg áhrif og skapað óviðun-
andi öryggisleysi bæði hjá sjó-
mönnum og fiskvinnslufólki.
Þingið leggur því til, að horfið
verði frá þessu fyrirkomulagi um
næstu áramót og tekið upp á ný
tegundarmark, þar sem aflanum
er skipt milli báta og togara eftir
veiðitímabilum, hliðstætt því
sem gilti fyrir árið 1985.
Skipting eftir veiðitímabilum
Árinu verði skipt í þrjú jafnlöng
veiðitímabil og við það miðað,
að þorskaflinn skiptist sem næst
því, sem hér segir:
Bátar Togarar
þús. lestirþús. lestir
1. tímabil:Janúar/ apríl 120 70
2. tímabihMaí/ ágúst 30 65
3. tímabil: Sept- ember/desember 20 55
170 190
Náist ekki hámarksafli hvers
tímabils, færist aflinn yfir á næsta
tímabil. Komi hins vegar í Ijós að
loknum fyrstu þrem mánuðum
tímabilsins, að aflinn muni fara
fram úr viðmiðunarmörkum með
óbreyttri sókn, skal takmarka
sóknina síðasta mánuðinn
umfram það, sem áður var ákveð-
ið.
Takmarkanir á veiðum báta-
flotans
Á árinu verði bátum óheimilt
að stunda þorskveiðar í 32 daga.
Á fyrsta tímabili í 10 daga um
páska, á öðru tímabili í 10 daga
um verslunarmannahelgi og á
þriðja tímabili í 12 daga í lok
ársins.
Hlutfall þorsks í afla þeirra
báta, sem stunda aðrar veiðar á
þessum tímabilum, má aldrei fara
fram úr 20% heildarafla.
Verði þorskafli báta á ein-
hverju tímabili meiri en viðmið-
unarmörk segja til um, skal fjölga
veiðibannsdögum. Veiðar neta-
báta á tímabilinu 1. janúar til 10.
febrúar verði takmarkaðar við
30% þorsks í heildarafla. Neta-
veiðar verði óheimilar á tímabil-
inu 1. júlí til 1. ágúst eða þar til
veiðbanni á 2. tímabili lýkur.
Togbátum verði óheimilt að
stunda þorskveiðar á tímabilinu
frá 1 .-10. maí.
Takmarkanir á veiðum togara-
flotans
Á árinu verði togurum óheimilt
að stunda þorskveiðar í 100 daga
innan eftirfarandi marka:
Á fyrsta tímabili í 20 daga, á
öðru tímabili Í45daga ogáþriðja
tímabili í 35 daga.
I þorskveiðibanni er togurum
heimiltað hafa þorsksem hlutfall
af heildarafla í hverri veiðiferð:
5% í 33 daga, 15% í 34 daga
og 30% í 33 daga, minnst 4 daga
í senn.
Skipstjórar eða útgerð tilkynni
sjávarútvegsráðuneytinu með
skeyti að lokinni hverri veiðiferð,
hversu marga daga þeir hafi verið
í þorskveiðibanni og hve mikið af
þorski sé í aflanum.
Fari þorskurfram úrviðmiðun-
armörkum, skal það, sem um-
fram er gert upptækt.
Verði þorskafli togara á ein-
hverju tímabili meiri en viðmið-
unarmörk segja til um, skal veiði-
bannsdögum fjölgað, en verði
hann minni, skal þeim fækkað.
Fari annar botnfiskafli verulega
fram úr viðmiðunarmörkum, skal
úthald þeirra takmarkað, þannig
ÆCIR-711