Ægir - 01.12.1985, Blaðsíða 30
fengið sömu umfjöllun, kvöld
eftir kvöld í sjónvarpinu eins og
skuldum vafðir húsbyggjendur,
þá væri kannske von til þess að
þjóðin skildi, hvað hún á í
vændum, ef sjávarútvegurinn
getur ekki lengur aflað gjaldeyris
af því að skipin eru að verða úrelt
og óhæf til veiða.
Ég legg til að þeim tillögum,
sem ég greindi frá í upphafi máls
míns verði vísað til fjárhags-
nefndar, því grundvöllurinn fyrir
því að við getum hugsað til þess
að fara að endurnýja skipin, er að
við fáum tækifæri til að bæta
eigin fjárstöðu okkar í stað þess
að sífellt er verið að tæta eigið fé
af þeim fyrirtækjum sem eftir
standa í íslenskum sjávarútvegi.
Mynd III.
Þaðer þetta sem við kollum: FISKVEIÐAR Á ÞURRU LANDI, VEIÐAR ÁN SJÓFERÐAR.
AUKIÐ ÖRYGGIIVIGTUN
Með Póls vogakerfi næst
margfalt jalnari vigtun auk eftirlits.
Jafnari vigtun = öruggari
vigtun = engin undirvigt.
MIKIL ARÐSEMI
Reynslan sýnir að vegna jafnari vigt-
unar, lækkar meðalvigtin. Póls-
vogakerfið sparar þvl geysilegar
fjárhæðir samfara AUKNU ÖRYGGI.
Á þennan hátt stunda nú fjölmörg
frystihús „fiskveiðar" með Póls-
vogakerfi. Þær vogir og vélar frá
Pólnum, sem nú eru i notkun I land-
inu, afla með þessum hætti á við
meðal skuttogara miðað við aflaverð-
mæti.
©
Póllinn h.f.
Aðalstræti 9,
Pósthólf 91
400 Isafjörður
Slmi (94)3092