Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1985, Blaðsíða 33

Ægir - 01.12.1985, Blaðsíða 33
um möguleikana á því að fá skip til þess að hýsa námskeiðin. Varðskipið Þór sem Slysa- varnafélag íslands hefur nú eign- ast væri vissulega góður kostur til þess að hýsa slíkt námskeið, með því móti væri auðvelt að flytja námskeiðin milli staðaogauðvelt væri að koma fyrir verklegum æfingum, sem þurfa að fara fram við sjó. Nefndin leggur til að komið skuli upp verklegri þjálfunarmið- stöð í brunavörnum fyrir sjó- menn. Margar fleiri tillögureru í nefnd- arálitinu. Nefndin leggur áherslu á að framkvæma beri tillögur hennar um lágmarksöryggisfræðslu í öllum helstu útgerðarstöðvum landsins svo fljótt sem auðið er. Lagt er til að teknar verði inn á fjárlög 1986 10 millj. króna til þessa námskeiðahalds. Þessar tillögur hafa nú þegar verið samþykktar af samgöngu- ráðherra Matthíasi Bjarnasyni og verður farið fram á að 10 millj- ónum verði varið til þessa verks á næstaári. Slysavarnafélag íslands hefur á þessu ári haldið námskeið fyrir starfandi sjómenn um marga þætti öryggismála. Þessi nám- skeið hafa mælst mjög vel fyrir meðal sjómanna. Reyndustu yfir- menn í flotanum hafa sótt þessi námskeið ásamt öðrum með minni starfsreynslu. Það er sam- dóma álit okkar reyndustu manna, að þeir hafi ekki síður þörf fyrir þjálfun og endur- menntun á slíkum námskeiðum, en þeir sem minni hafa starfs- reynsluna. Föstudaginn 1. nóvember s.l. var lokið viðað vinnafrumvarptil laga um Siglingamálastofnun ríkisins. Þar eru helstu nýmæli þau að skipað verður sérstakt Siglingamálaráð. Verkefni Sigl- ingamálaráðs skal vera: Að vera ráðgefandi aðili fyrir ráðherra og siglingamálastjóra í málum varðandi starfsemi Sigl- ingamálastofnunar ríkisins, svo og öðrum þeim málum, sem ráðsmenn eða sigl ingamálastjóri telja rétt að ráðið fjalli um. Siglingamálaráð skal fylgjast með tækniþróun mála í verka- hring Siglingamálastofnunar rík- isins og gera tillögur um breyt- ingar á lögum og reglum varð- andi verkefni Siglingamálastofn- unar ríkisins. Það skal fjalla um niðurstöður úr rannsóknum sjóslysa og sjá um birtingu þeirra árlega, eða oftaref ástæða þykirtil. Sjö fulltrúar skipa Siglinga- málaráð frá F.F.S.Í., L.Í.Ú., S.I.K., S.S.Í., Félagi dráttarbrauta og skipasmiðja og Slysavarnafé- lagi íslands. Ráðherra skipar formann. Það nýmæli er einnig sett í lögin að Siglingamálastofn- un getur óskað eftir aðstoð Land- helgisgæslu íslands til skyndi- skoðunaráskipum íhöfnum inni. Það samstarf hefur reyndar þegar komist á fyrir atbeina siglinga- málastjóra. í þessu frumvarpi er lagt til að Rannsóknarnefnd sjóslysa verði lögð niður, þegar þeim verk- efnum sem hún er þegar með í gangi lýkur. En eins og ykkur er þegar kunnugt, erveriðaðgeratilraunir með afísingarbúnað á vegum nefndarinnar. Það er þó skilyrt að Rannsókn- arnefndin verði ekki lögð niður fyrr en búið sé að skipa nýja Rannsóknarnefnd sjóslysa, sam- kvæmt grein nr. 230 í nýjum Sigl- ingalögum. Ætlunin er að þessi nefnd standi að rannsókn sjóslysa á sama hátt og staðið hefur verið að rannsókn flugslysa undanfarin ár. Siglingamálastofnun ríkisins hefur tekið mörg mál til með- ÆGIR-703
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.