Ægir - 01.12.1985, Page 33
um möguleikana á því að fá skip
til þess að hýsa námskeiðin.
Varðskipið Þór sem Slysa-
varnafélag íslands hefur nú eign-
ast væri vissulega góður kostur til
þess að hýsa slíkt námskeið, með
því móti væri auðvelt að flytja
námskeiðin milli staðaogauðvelt
væri að koma fyrir verklegum
æfingum, sem þurfa að fara fram
við sjó.
Nefndin leggur til að komið
skuli upp verklegri þjálfunarmið-
stöð í brunavörnum fyrir sjó-
menn.
Margar fleiri tillögureru í nefnd-
arálitinu.
Nefndin leggur áherslu á að
framkvæma beri tillögur hennar
um lágmarksöryggisfræðslu í
öllum helstu útgerðarstöðvum
landsins svo fljótt sem auðið er.
Lagt er til að teknar verði inn á
fjárlög 1986 10 millj. króna til
þessa námskeiðahalds.
Þessar tillögur hafa nú þegar
verið samþykktar af samgöngu-
ráðherra Matthíasi Bjarnasyni og
verður farið fram á að 10 millj-
ónum verði varið til þessa verks á
næstaári.
Slysavarnafélag íslands hefur
á þessu ári haldið námskeið fyrir
starfandi sjómenn um marga
þætti öryggismála. Þessi nám-
skeið hafa mælst mjög vel fyrir
meðal sjómanna. Reyndustu yfir-
menn í flotanum hafa sótt þessi
námskeið ásamt öðrum með
minni starfsreynslu. Það er sam-
dóma álit okkar reyndustu
manna, að þeir hafi ekki síður
þörf fyrir þjálfun og endur-
menntun á slíkum námskeiðum,
en þeir sem minni hafa starfs-
reynsluna.
Föstudaginn 1. nóvember s.l.
var lokið viðað vinnafrumvarptil
laga um Siglingamálastofnun
ríkisins. Þar eru helstu nýmæli
þau að skipað verður sérstakt
Siglingamálaráð. Verkefni Sigl-
ingamálaráðs skal vera:
Að vera ráðgefandi aðili fyrir
ráðherra og siglingamálastjóra í
málum varðandi starfsemi Sigl-
ingamálastofnunar ríkisins, svo
og öðrum þeim málum, sem
ráðsmenn eða sigl ingamálastjóri
telja rétt að ráðið fjalli um.
Siglingamálaráð skal fylgjast
með tækniþróun mála í verka-
hring Siglingamálastofnunar rík-
isins og gera tillögur um breyt-
ingar á lögum og reglum varð-
andi verkefni Siglingamálastofn-
unar ríkisins.
Það skal fjalla um niðurstöður
úr rannsóknum sjóslysa og sjá um
birtingu þeirra árlega, eða oftaref
ástæða þykirtil.
Sjö fulltrúar skipa Siglinga-
málaráð frá F.F.S.Í., L.Í.Ú.,
S.I.K., S.S.Í., Félagi dráttarbrauta
og skipasmiðja og Slysavarnafé-
lagi íslands. Ráðherra skipar
formann. Það nýmæli er einnig
sett í lögin að Siglingamálastofn-
un getur óskað eftir aðstoð Land-
helgisgæslu íslands til skyndi-
skoðunaráskipum íhöfnum inni.
Það samstarf hefur reyndar þegar
komist á fyrir atbeina siglinga-
málastjóra.
í þessu frumvarpi er lagt til að
Rannsóknarnefnd sjóslysa verði
lögð niður, þegar þeim verk-
efnum sem hún er þegar með í
gangi lýkur.
En eins og ykkur er þegar
kunnugt, erveriðaðgeratilraunir
með afísingarbúnað á vegum
nefndarinnar.
Það er þó skilyrt að Rannsókn-
arnefndin verði ekki lögð niður
fyrr en búið sé að skipa nýja
Rannsóknarnefnd sjóslysa, sam-
kvæmt grein nr. 230 í nýjum Sigl-
ingalögum. Ætlunin er að þessi
nefnd standi að rannsókn sjóslysa
á sama hátt og staðið hefur verið
að rannsókn flugslysa undanfarin
ár.
Siglingamálastofnun ríkisins
hefur tekið mörg mál til með-
ÆGIR-703