Ægir - 01.12.1985, Qupperneq 12
hafa óhjákvæmilega orðið til
þess, að störfum hefur nokkuð
seinkað.
Starfsemin var að öðru leyti í
föstum skorðum. Útvegurvargef-
inn út á venjulegum tíma, en störf
vegna úrvinnslu á rekstrareikn-
ingum hafa tafist nokkuð. Ýmis
sérverkefni voru unnin fyrir aðila
utan Fiskifélagsins.
Eins og getið var í yfirliti, sem
lagt var fyrir síðasta Fiskiþing, var
tölva félagsins endurnýjuð í lok
síðasta árs. Mestur hluti orkunnar
á þessu ári hefur farið í að undir-
búa vinnslu á þessari nýju vél.
Hefur það starf verið mjög um-
fangsmikið, þar sem þau voru
búin að ganga sér til húðar. Þetta
starf hefur tafist enn frekar vegna
mannaskipta og tíðra bilana í
eldri tölvu.
Nýlega var gert samkomulag
við sjávarútvegsráðuneytið um
aðgang þess og annarra stofnana
sjávarútvegsins að hinni nýju
tölvu félagsins. Þegar er ákveðið,
að ráðuneytið sjálft og Ríkismat
sjávarafurða tengist tölvunni, og
verði þar með þann hluta sinnar
vinnslu, sem hagkvæmt þykir.
Þetta skref er að mörgu leyti
skynsamlegt, þar sem ýmis gögn
nýtast öllum sto'fnunum sameig-
inlega. Ætti það að draga úr tví-
verknaði við viðhald þessara
gagna. Hins vegar þarf að taka
afstöðu til ýmissa hliða þessa
máls, m.a. um vernd gagna.
Þetta hefuróhjákvæmilega íför
með sér verulegar breytingar á
rekstri tölvunnar. Ljóst er að
nokkuð þarf að fjárfesta vegna
þessara nýju verkefna, og úti-
lokað er að núverandi mannafli
anni því aukna starfi, sem þetta
hefur í för með sér.
Aflatryggingasjóður 1984
í skýrslunni í fyrra um störf Afla-
tryggingasjóðs fyrir árið 1983,
var þess getið að lögum um alm.
deild sjóðsins hefði verið breytt.
Með lögum nr. 21 frá 24. apríl
1984 var ákveðið að greiða úr
alm. deildinni árið 1984 4%
bætur á allt verðmæti afla, sem
landað væri innanlands, miðað
við lágmarksverð skv. ákvörðun
Verðlagsráðs og á skiptaverð-
mæti við landanir erlendis.
Þessar bætur átti að greiða inn
á reikning hvers skips hjá Stofn-
fjársjóði fiskiskipa.
Með sömu lögum var einnig
ákveðið að mótframlag ríkissjóðs
árið 1984, færi til áhafnadeildar
en ekki hinnar almennu eins og
verið hefur allt til þessa.
Með framangreindum lögum
var í senn starfsemi alm. deildar
gjörbreytt frá því sem áður hefur
verið, allar götur frá árinu 1949.
Með lögum nr. 102 frá 30. júlí
1984 var einnig ákveðið að alm.
deildin greiddi 3% verðuppbót á
sama stofn, tímabilið 1. ágúst til
31. október 1984.
Þessar greiðslur átti að greiða
beint til útgerða skipa. Síðar var
þessu breytt þannig að greiðsl-
urnar voru út árið.
Lögum áhafnadeildar og verð-
jöfnunardeildar var ekki breytt á
árinu svo þær störfuðu með hefð-
bundnum hætti.
Áhafnadeildin fékk til ráð-
stöfunar af útflutningsgjaldi 1984
kr. 164.6 mi11jónir oggreiddi upp
í fæðiskostnað sjómanna kr.
176.7 milljónir. Að venju sá
áhafnadeildin um greiðslu til líf-
eyrissjóða sjómanna og voru það
kr. 71.5 milljónir árið 1984, og
nú í ár er búið að innheimta kr.
101.8 milljónir.
Þess er rétt að geta, að ríkis-
sjóður endurgreiddi 37.1 millj.af
þeim kostnaði sem lög nr. 102
höfðu í för með sér.
í skýrslunni í fyrra var farið
nokkuð yfir starfsemi deilda
sjóðsins árið 1984 og verður því
ekki farið fleiri orðum um það ár
en fjallað örlítið um yfirstandandi
ár.
Lög nr. 12 voru samþykkt á Al-
þingi 15. apríl s.l.
Þarerm.a. gert ráðfyrirþví, að
sjóðurinn fái tekjur árið 1985 af
endurgreiddum söluskatti til sjáv-
arútvegsins.
Alm. deild fái 230 milljónir,
verðjöfnunardeild 230 milljónir
og áhafnadeild 80 milljónir
króna. Þetta gerir samtals 540
milljónir króna.
Það er rétt að geta þess strax,
að samkvæmt greiðsluáætlun
fjármálaráðuneytisins fyrir árið
1985 er þessi upphæð orðin að
430 milljónum króna. Sömu-
Staða deilda sjóðsins miðað við 31. október s.l. varsem hér segir:
Alm.d. Áhafnad. Verðj.d. Samtals
m.kr. m.kr. m.kr. m.kr.
Eignir/skuldir 1.1. '85 163 65 + 72 156
Tekjur af útfl.gj. 1.1 .-30.9 153 215 203 571
Endurgreiðsla af söluskatti 213 0 152 365
Tekjur af mótframlagi 0 50 0 50
Samtals 529 330 283 1.142
Ráðstöfun 1.1.-31.10. '85
Vegna1984 94 61 38 193
Vegna1985 376 171 288 835
Samtals 470 232 326 1.028
Þá er til ráðstöfunar nú
1. nóv. 1985 59 98 +43 114
682-ÆGIR