Ægir

Årgang

Ægir - 01.08.1989, Side 10

Ægir - 01.08.1989, Side 10
406 ÆGIR 8/89 breytingar á afla landshlutanna, þ.e.a.s. tekin til samanburðar árin 1983 og 1988. í töflu 4 og 5 er sett fram ráðstöfun afla frá skipum þessi ár. Tekið skal fram strax svo ekki valdi misskilningi að tafla 4, yfir ráðstöfun aflans 1983 er ekki kórrétt. Eins og síðar er rakið er sjófrysting þegar byrjuð á árinu 1983, þó í mjög litlum mæli, útflutningur ísfisks í gámum er einnig komin eitthvað á veg. Nokkur þúsund tonn af ísfiski sem flutt voru út í gámum eru inni í tölum um landaðan afla erlendis. Sömu þorskígiIdisstuðlar eru not- aðir til útreiknings í töflum 4 og 5 og notaðar voru fyrr í greininni. Á eftir verður hinsvegar settur fram aflinn með magntölum, þegar fjallað verður um helstu tegundir. Ef lesendur bera saman þessar tvær töflur reka þeir sjálfsagt fyrst augun í helsta mismun milli þess- ara ára, sem er sjófrystingin og gámaútflutningurinn. Af sama toga er önnur breyting sem minna lætur yfir sér, en það er hve útgerð virðist vera orðinn óháðari heima- höfnum skipanna. Að vísu vega uppsjávarfiskar og rækja þyngst i löndunum utan heimahafnar og aukinn afli þessarra tegunda hefur þannig mest að segja í þessum efnum. Þessi breyting er þó sama marki brennd og sjófrysting og gámaútflutningur. Aukin sam- keppni innlendra fiskmarkaða og umboðssala um fiskinn, er smámsaman að breyta varanlega vægi helstu greina íslensks sjávar- útvegs, útgerðinni í hag. Kvóta- kerfið er vafalaust helsta orsök þessarra breytinga, en ýmsir þættu hafa haft samverkandi áhrif í þessa átt. Tengsl útgerðar og vinnslu hafa ævinlega verið mikil °8 stærstur hluti flotans hefur ýmist verið eigu fiskvinnslunar eða eign- arhlutar í eigu sömu aðila. I4U virðist margt benda til að þess| bönd séu að rakna eða vaeg' útgerðar og fiskvinnslu alltént að breytast frá því sem áður var. Að vísu gildir annað um sjófrysting- ina, þar sem eðli málsins sam- kvæmt verða tengsl vinnslu °8 veiða ekki rofin. Sennilegt verður þó að telja að stjórnvöld leV' útgerðinni ekki að ráðstafa fís með fullkomlega frjálsum hætti- Sem stendur að minnsta kosti er íslensk fiskvinnsla ekki samkeppn'5 fær við erlenda um verð. Innlend fiskvinnsla er og he u verið vernduð á kostnað útgerðar innar með hindrunum á útflutn ingi ísfisks. Sú verndun er fólgin ' reglugerð um botnfiskveiðar, Pc1 segir að fiskur sem fluttur er sem ísfiskur á erlenda markaði s u Tafla 4 Ráðstöfun heildaraflans 1983. (í þorskígildum) Heima- landanir Landað innanl. Sjófryst Landað erlendis Gáma fiskur Alls Þorskur 239583 44451 0 9005 0 293039 Ýsa 54748 13566 0 4882 0 73196 Ufsi 25971 4059 0 1670 0 31700 Karfi 60604 6994 0 9162 0 76760 Steinbítur 6824 759 0 500 0 8083 Lúða 2370 516 0 256 0 3142 Grálúða 21120 2949 0 1489 0 25557 Skarkoli 6121 2051 0 1372 0 9543 Síld 7584 7445 0 0 0 15030 Loðna 1625 11761 0 0 0 13386 Humar 8748 4982 0 0 0 13730 Rækja 19495 10928 0 0 0 30422 Hörpudiskur 7659 860 0 0 0 8519 Annað 8098 986 0 915 0 9999 Samtals: 470550 112308 0 29251 0 612108 Tafla 5 Ráðstöfun heildaraflans 1988. (í þorskígildum) Heima- landanir Landað innanl. Sjófryst Landað erlendis Gáma- fiskur Alls Þorskur 237458 55329 36836 19256 27087 375966 Ýsa 26903 9105 3777 4629 16370 60785 Ufsi 27190 5646 3964 2628 2736 42164 Karfi 28399 6033 11060 9412 3894 58798 Steinbítur 6411 1604 127 331 1247 9720 Lúða 495 27 195 234 1175 2126 Grálúða 21644 4102 14691 1435 2222 44094 Skarkoli 6234 850 510 355 7810 15759 Síld 9170 14371 135 0 0 23678 Loðna 30089 55066 10 6020 0 91185 Humar 7260 4223 166 0 0 11650 Rækja 22400 20375 22841 0 0 65616 Hörpudiskur 5254 397 0 0 0 5651 Annað 8020 2056 1209 394 1125 12804 Samtals: 436927 179184 95522 44696 63666 819995

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.