Ægir - 01.08.1989, Side 14
410
ÆGIR
8/89
Svo sem áður hefur verið nefnt var
einungis einn togari sem veiddi og
vann aflann allt árið 1983, togar-
inn Örvar frá Skagaströnd. Hann
aflaði 4.191 tonn af botnfiski á
árinu 1983, aðallega þorsk. Auk
Örvars voru Hólmadrangur frá
Hólmavík og Akureyrin við veiðar
hluta ársins 1983. Frysting á rækju
um borð í fiskiskipum á sér lengri
sögu hér við land en frysting
bolfisks, þó var sú vinnsla ekki í
líkt því eins stórum stíl og nú
tíðkast. Annars sjá lesendur betur
á línuriti 7, hvernig sjófrystingin
hefur þróast síðustu 7 ár.
ÚTFLUTNINGUR ÍSFISKS
Útflutningur ísfisks hefur farið
ört vaxandi á síðustu árum. Árið
1988 nam þessi útflutningur sem
svaraði 108.362 þorskígildis-
tonnum, eða rúmlega 13% af
heildarafla ársins, 1983 var þessi
útflutningur 29.266 þorskígildistonn
samkvæmt sömu vogtölum eða
tæp 5% af heiIdarafla það ár.
Aukning þessa útflutnings hefur
verið nokkuð stöðug allan þennan
áratug.
Á línuriti 8 sést hvernig lands-
hlutaskipting ísfisksútflutnings var
á árinu 1988. ísfiskinum er skipt á
landshluta í þorskígildum og sömu
vogtölur notaðar og lýst var í upp-
hafi greinarinnar. Skipting aflans í
prósentum af hei Idarútfl utn ingi
ísfisks var eins og tafla 7 sýnir.
Tafla 7
Hlutfall
Landshluti 1988 1983
Suðurland 26% 13%
Reykjanes 28% 55%
Vesturland 6% 3%
Vestfirðir 14% 3%
Norðurland-vestra 3% 2%
Norðurland-eystra 7% 8%
Austfi rðir 16% 16%
Af töflunni sést að fjórir lands-
hlutanna: Suðurland, Reykjanes,
Vestfirðir og Austfirðir, eru með
84% af ísfisksútflutningnum árið
1988 og þar af flytur Suðurland
sýnu stærst hlutfall af afla lands-
hlutans, út sem ísfisk. Á Norður-
landi virðist reglan að at'linn sé
tekinn til frekari vinnslu áður en
hann er íluttur út, þó er talsverð
aukning á ísfiskútflutningi frá
Norðurlandi árið 1988 frá því sem
áður var. 1987 var Norðurland
einungis með 5% af heildarút-
flutningi ísfisks og Vesturland með
5% Vestfirðir, Reykjanes og
Suðurland skiptu hinsvegar með
sér 79% af heildarútflutningi
ísfisks það ár (Tekið skal fram að
skipting ársins 1987 er reiknuð
með öðrum þorskígi Idisstuðlum)-
Áberandi er í töflu 5, hve mikið
Vestfirðir og Suðurland hafa aukið
hlutdeild sínaí ísfiskútflutningnum
á kostnað Reykjaness. Hvað
Suðurland varðar skýrist þessi
aukning af breyttum áherslum i
útgerðarháttum Vestmanna-
eyinga, árið 1983 var einungis
fluttur út ísfiskur frá Vestmannna-
eyjum sem svaraði til 2.548 tonna
af þorski eða tæp 5% af heildar-
afla Vestmanneyinga í þorsk-
ígildum talið. Á síðasta ári fluttu
Vestmanneyingar út 21.758 þorsk-
ígildistonn eða um það bil 30%
af heildarafla sínum. Milli þessara
tveggja ára varð til ný aðferð '
verslun og flutningi með fisk, en
það var að flytja hann ferskan í
gámum á markaði í V-Evrópu-
Vestmannaeyingar standa óvenju
vel að vígi hvað þennan flutnings-
máta snertir vegna nálægðar við
markaði. Að jafnaði eru Vest-
mannaeyjar síðasta lestunarhöfn
skipa á leið til Evrópu, þannig a
ísfiskurinn getur borist á ferskíisk-
markaði í Bretlandi rúmlega
þremur dögum eftir að hann er
dregin úr sjó þegar best laetur-
Virðist þetta vera hagkvæmt fyrir
útgerð í Vestmannaeyjum, ÞVJ
flutningar hafa farið vaxandi þrá(t
fyrir að þessum útflutningi sen
nokkrar skorður settar, þar sen1
15% frádráttarreglan er.
Hvað Vestfirðinga varðar
ekkert sérstakt sem mælir me
ísfiskútflutningi þaðan fram Y1
aðra landshluta nema ef vet
skyldi skortur á vinnuafli sem vl