Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.1989, Síða 25

Ægir - 01.08.1989, Síða 25
8/89 ÆGIR 421 a skrúfu hefur togkraftur á hvert hestafl aukist frá 10-12 kg/hö í 15-17 kg/hö. Aöalvél með lága eðliseyðslu Valdar hafa verið í þessi skip ^illihraðgengar aðalvélar með ^ágan eyðslustuðul og eru þær 'átnar framleiða alla þá orku sem þarf um borð. Auk þess að knýja skrúfuna eru á niðurfærslugír afl- uttök fyrir vökvadælur sem drífa a|lar vindur um borð. Einnig knýr 8'nnn riðstraumsrafal sem skilar 220/380 V 50 Hz. við 750 snún- lng á aðalvél. Þessi skip koma til að stunda netaveiðar hluta af arinu og eru þá langtímum saman 1 notkun með mjög lítið álag á aðalvél. Við þær kringumstæður Verður eðliseyðsla vélarinnar allhá Verði hún höfð á föstum snú- n'ngshraða 750 RPM. Því hefur Ver'ð þróaður HZ breytir sem §eíur möguleika á að breyta hraða Ve|arinnar allt niður í 500 RPM, en halda áfram 50 HZ inn á raf- erfi skipsins. Hiti frá kælivatni Velarinnar er einnig notaður til að lta upp vistarverur og neyslu- vatnið um borð. Meðferð afla Skip af þessari stærð stunda flest ísfiskveiðar til vinnslu í íslenskum frystihúsum og til sölu á erlendum mörkuðum. Til að tryggja sem besta meðferð afla og bestu vinnu- aðstöðu um borð eru sett upp færi- bönd, slægingaraðstaða og tvö- faldur þvottur á milliþilfari. Lestin er útbúin fyrir u.þ.b. 90 stk. 660 I einangruð fiskikör. Það hefur færst mjög í vöxt að geyma fiskinn um borð í slíkum körum og hefur það skilað góðum árangri bæði hvað varðar gæði og vinnusparnað við löndun. VIÐHALD SKIPA Ég vil aðeins minnast nokkrum orðum á viðhald skipa. Fyrirbyggjandi viðhald við hönnun Við hönnun þeirra breytinga og nýsmíðaverkefna sem Ráðgarður hefur staðið að, höfum við nýtt okkur þá reynslu sem fengist hefur af eldri skipum hvað viðhald varðar. Sem dæmi má nefna eftir- farandi atriði sem tekið er tillit til við hönnun þ.e.a.s. sérstakra styrkinga og yfirþykktar á plötum á skut, skutrennu og togþilfari. Aukin notkun á ryðfríu stáli í rörum og ýmsum búnaði, sand- blástur og galvanhúðun á öllu stáli utan dyra. Sérstakar styrkingar á perustefni o.fl. Fyrirbyggjandi viðhaldskerfi Einnig hefur Ráðgarður hannað sérstakan hugbúnað fyrir skip og framleiðslufyrirtæki í landi, til að auðvelda þeim að skipuleggja og stjórna fyrirbyggjandi viðhaldi. ÖRYGGISMÁL SJÓMANNA Að lokum skal vikið nokkrum orðum að öryggismálum sjómanna. Á undanförnum árum hefur Sigl- ingamálastofnun ríkisins og einka- aðilar o.fl. unnið að ýmsum þörfum málum sem stuðlað hafa að auknu öryggi sjómanna. Sem dæmi má nefna vökvaknúinn skutrennuloka á skuttogurum, neyðarstöðvun á vindum og ýmsum búnaði, auknar kröfur um stöðugleika, björgunarnet Mark- úsar og flotbúninga fyrir alla áhöfnina o.fl. Það er engu að síður staðreynd að þrátt fyrir þennan aukna öryggisútbúnað og þrátt fyrir þær miklu endurbætur sem gerðar hafa verið á eldri skipum okkar hefur slysum farið fjölgandi um borð í íslenskum fiskiskipum. Ekki er hægt að fullyrða hvort sú aukning sé tilkomin vegna þess að of langt hefur verið gengið í að endurbyggja gömul skip. Hins vegar má segja að þróun undan- farinna ára hafi ekki orðið til þess að fækka slysum. Það er því ósk mín til allra íslenskra sjómanna og útgerðar- manna að í framtíðinni verði þeim kleift í auknum mæli að byggja sér ný og örugg skip svo snúa megi þessari þróun við. Höfundur er skipatæknifræðingur og starfar hjá Ráðgarði.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.