Ægir - 01.08.1989, Qupperneq 26
422
ÆGIR
8/89
BÓKAFREGN
Siglingareglur
Stjórn og sigling skipa
Höfundur: Guðjón Ármann
Eyjólfsson
Útgefandi: ísafoldarprentsmiðja hf.
Árið 1982, kom út bókin „Stjórn
og sigling skipa", undirtitill: Siglinga-
reglur, eftir Guðjón Ármann
Eyjólfsson skólastjóra Stýrimanna-
skólans. Bókin fjallaði, eins og
nafnið gefur til kynna, um alþjóða-
reglur varðandi siglingar. Bókin
var að öðrum þræði hugsuð sem
kennslubók fyrir stýrimannaskóla,
en einnig sem heppileg handbók
fyrir stjórnendur skipa. Nýlega
kom út önnur útgáfa þessarar
bókar, „Siglingareglur", undirtitill:
Stjórn og sigling skipa. Nýja
útgáfan er talsvert frábrugðinn
hinni fyrri, þannig að fremur er
hægt að segja að um nýja bók sé
að ræða.
í formála Guðjóns segir: „ Bókin
er samræmd breytingum á siglinga-
reglunum, sem tóku gildi 1. júní
1982, en einnig eru teknar upp
breytingar á reglunum, sem voru
samþykktar á 15. þingi Alþjóða-
siglingamálastofnunar haustið
1987 (Ályktun A 626) og munu
taka gildi 19. nóvember 1989. í
fjölmörgum atriðum má frekar
segja, að um sé að ræða nýja bók
byggða á hinni fyrri, þar eð við-
bætur eru svo miklar og endur-
skoðun sumra kafla gagnger."
Fyrri bókin var fyllilega tímabær
og sú nýja er ekki síður tímabær.
Áður en Guðjón gaf út fyrri bók-
ina, skorti tilfinnanlega kennslu-
bók í þessu grunnfagi skipstjórn-
armennntunar. Alltaf hefur verið
lagt mikið upp úr, að réttinda-
menn sem útskrifast úr stýri-
mannaskólum á íslandi hafi hald-
góða þekkingu á siglingareglum
og gilt hafa strangari kröfur um
próf í siglingareglum en í öðrum
fögum skólanna. En, eins og áður
sagði, heppileg kennslugögn hefur
vantað og orðið hefur að treysta
einvörðungu á útsjónarsemi sigl-
ingareglukennaranna, sem vissu-
lega hafa staðið prýðilega undir
auknum kröfum sem námsgagna-
skortur hefur gert til þeirra. Hér er
um að ræða þekkingu sem skip-
stjórnarmenn verða ætíð að hafa á
takteinum og sjaldnast gefst tími til
Guðjon Armann Eyjolfsson_
SIGLINGA
REGLUR
STJORN OG SIGLING SKIPfl
að fletta upp í bókum þegarerfiðar
aðstæður krefjast réttra ákvarð-
ana. Sem dæmi um takmörkuð
kennslugögn má nefna að afstöðu-
myndir siglingaljósa, sem eru eitt
af grunnatriðum kennslu í siglinga-
reglum, voru ekki aðgengilegar
íslenskum skipstjórnarnemum fyrr
en með útgáfu Sjómannaalmanaks
1980 og þá í alltof takmörkuðum
mæli til notkunar í kennslu. Með
fyrri bók Guðjóns fengu skip'
stjórnarnemar loksins hæfileg
gögn til náms í þessum fræðum-
Nýja bókin er 398 blaðsíður og
skipt í tuttugu og tvo meginkafla,
bókin er prýdd á fimmta hundrað
skýringamynda, flestra í lit, auk
þess eru í bókinni fjögur sýnishom
af sjókortum yfir aðskildar sigl'
Mynd 1.
Stjórnvana skip, hvort heldur á ferð eða ferðlaust. Tvær svartar kúlur, önnur lóðr?
upp af hinni. ATH. I. Þvermál kúlu skal vera a.m.k. 0,6 metrar. ATH. 2. Lóðrt
fjarlægð á milli merkja skal vera a.m.k. 1,5 metrar. I. Viðauki - 6.gr.