Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.1992, Blaðsíða 12

Ægir - 01.03.1992, Blaðsíða 12
120 ÆGIR 3/92 Afkoma útgerðar 1991 Sveinn H. Hjartarson: Inngangur Það er ef til vill ekki í takt við breytta tíma að fjalla um afkomu útgerðar á almanaksárinu 1991 í Ijósi þess að fiskveiðiárið er ekki lengur heilt almanaksár. Fiskveiði- árinu 1990-1991 lauk 31. ágúst 1991 og nýtt fiskveiðiár hófst 1. september 1991 og er því aðeins rúmlega hálfnað þegar þetta er skrifað nú í marslok. Þessi breyt- ing á fiskveiðiárinu hefur haft meiri áhrif innan almanaksársins síðastliðin tvö ár, en margur kynni að halda í fyrstu. Þráttfyrir minnk- andi aflaheimildir hafa útgerðir getað dregið úr áhrifum minnk- andi afla innan almanaksársins vegna þess að fiskveiðiárin falla ekki saman við það. Starfsskilyrði Starfsski lyrði sjávarútvegsins hafa verið að breytast mikið. Meðal þeirra breytinga sem allra mestu máli skipta eru ákvarðanir fiskverðs. Vægi fiskverðsákvarð- ana í Verðlagsráði sjávarútvegsins á almennum botnfiski er ekkert í dag. Er nú svo komið að ekki hefur verið tekin ákvörðun um nýtt al- mennt fiskverð í ráðinu, þótt síðast gildandi verð rynni út í september 1991. Aftur á móti hefur starfsemi fiskmarkaða hér innanlands farið vaxandi svo og hefur vinnsla um borð í fiskiskipum aukist. Þá er ótalið það magn ísfisks sem fer á erlenda fiskmarkaði, þótt nú dragi úr þeirri starfsemi vegna hinnar ill- ræmdu kvótaskerðingar, sem því fylgir. Staða innlendra markaða hefur einnig styrkst gagnvart þeim erlendu, m.a. vegna aukins fram- boðs á þeim mörkuðum frá öðrum löndum. Það rekstrarumhverfi sem sjáv- arútvegsfyrirtæki standa frammi fyrir nú helgast mjög af þeim breytilegu aðstæðum sem einstök fyrirtæki búa við. Þar er fyrst að nefna mismunandi aflaheimildir. Ólíkar markaðsaðstæður, t.d- aukning á útflutningi á ferskum fiski í flugi. Mismikið eigið fe leiðir af sér ólíkan fjármagnskostn- að. Breytilegt tæknistig, þ-e- hvernig til hefur tekist varðandi nýfjárfestingar. Síðast en ekki síst þau byggða- og atvinnupólitísku skilyrði sem fyrirtækjum eru búim Almenn efnahagsleg skilyrði Þrátt fyrir verulega aukið vaeg1 framangreindra þátta í rekstrarlegu umhverfi fyrirtækjanna má alls ekki vanmeta þá þýðingu sem almenn efnahagsstjórnun í land- inu hefur fyrir afkomu greinarinn- ar. Hin margumtöluðu ytri skilytð' skipta atvinnuvegina að sjálfsögðu meginmáli. Almenn skilyrði grein- arinnar batna með lækkandi verð- bólgu. Þar skiptir máli hvort að vaxtastig verður í einhverju sam- ræmi við greiðslugetu greinarinn- ar. Aukið jafnvægi í efnahagslífinu ætti að skapa festu og grundvöll að nýrri sókn til lengri tíma. Seðlabankinn telur að gengi5' festan sé meginforsenda þeirrai" Mynd 1. Verðvísitölur botnfiskafurða í SDR. 1989 = 100.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.