Ægir - 01.03.1992, Blaðsíða 39
3/92
ÆGIR
147
Löggildingarstofan
Löggildingarstofan var stofnuð 1. janúar árið 1919 og er því 73 ára. Hlutverk stof-
unnar var frá byrjun eftirlit, prófanir og löggildingar voga og mælitækja og var þá auk
voganna átt við vogarlóð, metrakvarða og mæliker bæði fyrir fasta og fljótandi vöru.
í dag eru flestar vogir með kraftnema og með rafeindabúnaði fyrir aflestur. Minna er
um beinar rúmtaksmælingar en meira um rennslismæla með teljara, eins og t.d. bensín-
dælur og vatnsmæla. Starfshættir Löggildingarstofunnar hafa því eðlilega breyst í tímans
rás.
Einmitt nú standa þó yfir miklar breytingar á starfseminni og er það ekki vegna fram-
fara í mælitækni heldur fremur vegna aukinnar samræmingar iðnaðarþjóða á löggjöf
sinni, vegna aukinnar notkunar staðla og vegna niðurfellingar tæknilegra viðskiptahindr-
ana milli landa.
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið hefur einkum þurft að fást við þennan málaflokk og
hefur ákveðið að breyta og auka við starfsvið Löggildingarstofunnar til að mæta nýjum
þörfum. Löggildingarstofan skal hafa a.m.k. tvær deildir, faggildingardeild og mælifræði-
deild. Ekki verður fjallað um verkefni faggildingardeildarinnar hér, en verkefnum mæli-
fræðideildarinnar má skipta í tvennt og sér eftirlitsdeild um annan þáttinn og kvörðunar-
stofa um hinn.
Eftirlitið er framhald af því hlutverki sem stofan hefur haft frá stofnun, en þó með
mikilli aðlögun að samræmdum mælitæknilegum kröfum Evrópulanda og reyndar einnig
kröfum alþjóðastofnana eins og OIML (Alþjóða lögmælifræðistofnunin). Þetta eftirlit
byggir á því að viss mælitæki er skylt að taka út eða löggilda samkvæmt lögum og reglu-
gerðum til þess að tryggja megi rétt hins almenna borgara og reyndar allra aðila í við-
skiptum sem fram fara samkvæmt einhverjum mælingum.
Kvörðunarstofan fylgist með mælitækjum eftirlitsdeildar, en býður annars almenna
þjónustu, einkum með gæðakerfi og prófunarstofur í huga. Fagsvið kvörðunarstofu eru
enn sem komið er massi, rúmmál og hitastig. Stefnt er að því að bæta við kvörðunum fyrir
lengd og hugsanlega fleiri sviðum, en nú er unnið að endurnýjun tækjabúnaðar og hús-
næðis. Þessi þjónusta verður í samkeppni við fjölda aðila í nágrannalöndum okkar og
hugsanlega einhverja innlenda aðila.
Eitt mikilvægasta hlutverk Löggildingarstofunnar er öflun, varðveisla og viðhald
'andsmælistaðlanna, en það er sú viðmiðun sem allar mælingar á sömu fagsviðum byggja
a ef mælitækin hafa ekki beinni tengsl við hina alþjóðlegu frummælistaðla. Dæmi þessu
hl skýringar er kílógrammlóðið í Sévres í París, sem er alþjóðlegi frummælistaðallinn
fyrir massaeininguna kg. Hjá SP í Svíþjóð er eftirmynd af Parísareintakinu og okkar kíló-
grammlóð hefur verið borið saman við eintak Svíanna.
Nýtt frumvarp til laga er nú í vinnslu um þessi mál hjá iðnaðar- og viðskiptaráðuneyt-
lnu- Forstöðumaður Löggildingarstofunnar er Sigurður Axelsson og starfsmenn eru 11.
Með kveðju
LÖGGILDINGARSTOFAN
SlÐUMÚLA 13 • REYKJAVÍK • SÍMI 68 11 22