Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.1992, Síða 17

Ægir - 01.03.1992, Síða 17
3/92 ÆGIR 125 Útflutningur Stöðugur samdráttur hefur verið 1 útflutningi mjöls og lýsis síðustu ar eins og sést á mynd 1. Útflutningur ársins 1991 á fisk- mjöli er rétt rúmur helmingur af utflutningi ársins á undan. Eins og kam kemur í töflunni um mjölút- f utning er Bretland með algera serstöðu hvað varðar innkaup á miöli frá íslandi. Vex hlutdeild Þess ur rúmum 50% árið 1990 í f*P 70% 1991. Breski markaður- 'nn er mikill og stöðugur og auk Þess nálægur, þannig að flutnings- °stnaður er minni en á önnur markaðslönd fjær. Það er aftur á mÞti varhugaverð þróun er eitt markaðsland nær slíkri hlutdeild a útflutningi okkar sem raunin er með °retland. Slíkt kallar á aukna markaðssetningu í öðrum löndum °8 nauðsynlegar framleiðslubreyt- 'n^ar Ijj að fylgja henni eftir. árinu voru milli 15 og 20 þús. ^nn af fiskmjöli notuð innanlands 8 er það einhver minnkum frá 'Vrri árum. Mjölútflutningur 1991 (1990 er í sviga) Bretland f'nnland Danmörk Sv'þjóð Noregur ÞVskaland ísrael H°lland Þrakkland H°ng Kong Sviss Hngverjaland 45.796 (66.415) 4.142 (15.318) 4.011 (14.872) 3.631 (11.058) 3.425 (2.254) 2.935 (6.331) 1.761 (-) 1.466 (1.168) 1.265 (6.608) 72 (-> - (1.399) - (813) - (36) - (15) 68.504 (126.287) Þó útflut mikiH samdráttur væri í ningi mjöls á árinu varð hann enn meiri í búklýsisútflutningi. Nam útflutningurinn einungis um 40% af útflutningi ársins á undan. Noregur og Holland, okkar mikil- vægustu búklýsismarkaðir, halda hlutdeild sinni. Danmörk kemur inn með 1200 tonn, en samdráttur er á öðrum mörkuðum. Búklýsisútflutningur 1991 (1990 í sviga) Noregur 14.071 (29.286) Holland 7.265 (18.503) Bretland 1.997 (8.126) Danmörk 1.209 (-) Frakkland 1.017 (5.688) Þýskaland 468 (501) Finnland - (1.056) Samtals 26.027 (63.160) Verðþróun Þar sem óvissa var mikil um gang loðnuveiða í upphafi árs og veiðibann í gildi var eðlilega lítið um sölur á mjöli og lýsi. Verð hækkaði lítillega frá því sem það var í lok ársins 1990. Fyrir tonnið af venjulegu loðnumjöli fékkst á fyrstu mánuðum ársins 1991 um £315 og $310 fyrir tonnið af loðnulýsi. Verðið lækkaði er leið á árið, mjölið í £300 pr. tonn og lýsið var rétt yfir $300 hvert tonn. í ágústmánuði fengust um £305 fyrir tonnið af venjulegu loðnu- mjöli. Þetta verð fór hækkandi er leið á vertíðina, að hluta vegna skorts á loðnuafurðum, en fram- leiðsla var lítil vegna lélegs gangs veiða sem áður hefur verið vikið að. í lok ársins voru boðin £390 fyrir loðnumjölstonn. Sama verð- þróun var í lýsinu. í ágúst fengust um $320 fyrir tonnið af loðnulýsi. Það náði hámarki í nóvember en þá var hægt að selja tonnið á $380. Verðið lækkaði aftur í des- ember og fór þá niður í um $360 hvert tonn. Nidurlag Eins og hér hefur komið fram varð gífurlegur samdráttur í fram- leiðslu og útflutningi mjöl- og lýs- isiðnaðarins á loðnuafurðum á árinu. Hlutdeild iðnaðarins í heildarútflutningi sjávarafurða á árinu 1991 féll um helming frá fyrra ári, fór í um 3,6% og má þessi iðnaður muna sinn fífil fegri hvað það varðar. Ætla verður að botninum hafi verið náð í þróun sem hófst með hruni haustveiða árið 1989. Mikil bjartsýni var orðin ríkjandi í greininni áður en þessi kollsteypa dundi yfir. For- ráðamenn loðnuverksmiðja víða um land voru farnir að huga að mjög nauðsynlegum endurbótum verksmiðjanna, enda hafði verið ríkjandi stöðugleiki í loðnuveiðum frá loðnuveiðibanninu 1982 — 1983. Þetta samdráttartímabil, sem nú er vonandi að baki, mun væntanlega hafa einhver áhrif til að hægja á framþróun greinarinn- ar. Ekki einungis að fjárhagur þeirra fyrirtækja sem vinna loðnu er í molum, heldur hafa menn verið minntir óþyrmilega á að loðnan er fiskur sem erfitt er að treysta þegar framkvæmda- og fjárfestingaráætlanir eru gerðar. Veiðar á vetrarvertíð yfirstand- andi loðnuvertíðar hafa gengið vel þrátt fyrir mikla ótíð. Veiðikvóti íslendinga er kominn í 751 þús. tonn. Fiskifræðingar gefa góðar vonir um næstu loðnuvertíð 1992-1993 og hrygning loðnu sem stendur undir þarnæstu vertíð kom vel út að þeirra mati. Höfundur er framkvæmdastjóri Félags íslenskra fiskmjölsframleið- enda.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.