Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.03.1992, Qupperneq 18

Ægir - 01.03.1992, Qupperneq 18
126 ÆGIR 3/92 Pétur Bjarnason: Veiðar og vinnsla hörpudisks og rækju Árið 1991 var rækjuiðnaði afar erfitt. Afurðir héldu áfram að lækka í verði og verksmiðjurnar, sem flestar voru illa búnar undir verðfallið, lentu margar hverjar í efnahagslegum þrengingum. Tvær verksmiðjur urðu gjaldþrota og ein fékk greiðslustöðvun. Rækju- veiði var með mesta móti og þrátt fyrir verðfall var hlutdeild rækju- afurða í verðmæti sjávarafurða nálægt 9%. Hörpudiskvinnsla var í góðu jafnvægi á árinu. Verð afurða var stöðugt og afkoma viðunandi. Nokkurrar sölutregðu gætti undir lok ársins og blikur eru á lofti um verðlækkanir. Mest af hörpudiski er flutt út til Frakklands og ekki eru aðrir markaðir í augsýn sem geta greitt samkeppnishæft verð. Rækjuveiðar Samkvæmt tölum Fiskifélags íslands var rækjuafli á íslands- miðum 33.228 tonn árið 1991. Þar af fengust rúm 5.300 tonn af innfjarðarrækju. Þessi afli er u.þ.b. 6.800 tonnum eða 23% meiri en aflinn 1990. Samkvæmt mælingum Hafrannsóknastofn- unar eru rækjustofnar við ísland í góðu jafnvægi.í upphafi kvótaárs- ins, sem nú nær frá 1. september 1991 til 31. ágúst 1992, var ákveðið að leyfa veiðar á 6.000 tonnum af innfjarðarrækju og 28.000 tonnum af úthafsrækju. Þessar veiðiheimildir voru endur- skoðaðar í lok ársins og þá ákveðið að auka veiðiheimildir á úthafsrækju um 8.000 tonn. Afla- heimildir á yfirstandandi kvóta- tímabili eru því 41.000 tonn og hafa ekki áður verið meiri. Auk þess afla sem veiddist á íslandsmiðum voru keypt rúmlega 6 þúsund tonn af iðnaðarrækju til vinnslu innanlands. Vinnsla og verðmæti rækjuafurða Alls voru flutt út 10.923 tonn af skelflettri rækju á móti 8.042 tonnum árið áður. Þessu til við- bótar voru flutt út 5.864 tonn af rækju í skel á móti 3.063 tonnum árið 1990. Heildarmagn frystra rækjuafurða 1991 var því 16.787 tonn. Þetta er aukning um rúm- lega 50%. Verðmæti frystra rækjuafurða á árinu 1991 var 6.257 milljarðar króna á móti 4.777 milljörðum króna 1990. Þetta er um 30% aukning frá árinu áður. Þessu til viðbótar var flutt út niðursoðin rækja fyrir 566 milljónir króna og rækjumjöl fyrir tæpar 2 milljónir króna. Útfluttar rækjuafurðir voru því alls að verðmæti 6.825 millj- arðar króna sem er nálægt 9% af heildarútflutningi sjávarafurða. Verðþróun og horfur í rækjuvinnslu Verð frosinnar rækju hefur haldið áfram að falla á okkar helstu mörkuðum. Frá upphafi til loka ársins féll verð á frosinni skel- flettri rækju um ca. 12% og kom sú verðlækkun í kjölfar ca. 30% verðlækkunar frá því verðið var hæst. Því miður er ekki útlit fyrir að verðið taki miklum breytingum upp á við á næstu misserum- Aukið framboð af hlýsjávarrækju, einkum eldisrækju, truflar mark- aðinn í vaxandi mæli og mun án efa valda því að verð helst tiltölu- lega lágt miðað við þegar það var hæst.

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.