Ægir

Volume

Ægir - 01.03.1992, Page 32

Ægir - 01.03.1992, Page 32
140 ÆGIR 3/92 NÝ FISKISKIP Bylgja VE 75 Nýtt fiskiskip bættis við flota Eyjamanna 14. mars s.l.r en þann dag afhenti Slippstöðin hf. á Akureyri m/s Bylgju VE 75, sem er nýsmíði stöðvarinnar nr. 70. Skipið er smíðað sem skuttogari og er með búnað til vinnslu og frystingar á flökum. Skipið er hannað af Slippstöðinni hf. og hófst smíðin fyrir nokkrum árum án kaupanda. Á s.l. hausti, er smíði skipsins var lokið að mestu að undan- skilinni tækjaniðursetningu og ýmsum frágangi, samdi núverandi eigandi um kaup á skipinu. Bylgja VE 75 er annað skipið sem Slippstöðin afhendir á skömmum tíma til Vestmannaeyja, hið fyrra var Þór- unn Sveinsdóttir, afhent í júlí á s. I. ári. Hin nýja Bylgja VE 75 kemur í stað Bylgju VE 75 (sk.skr. nr. 1443), 149 rúmlesta stálfiskiskips, sem smíðuð var í Stálvík hf. árið 1976 og skemmdist í bruna á s. I. hausti. Bylgja VE 75 er í eigu Matthíasar Óskarssonar í Vestmannaeyjum, sem jafnframt er skipstjóri. Yfirvél- stjóri á skipinu er Einar Axel Gústafsson. Almenn lýsing: Skipið er smíðað úr stáli samkvæmt reglum og undir eftirliti Siglingamálastofnunar ríkisins. Skipið er skuttogari með tveimur þilförum stafna á milli, peru- stefni, skutrennu upp á efra þilfar, þilfarshús miðskips í síðum með brú (úr áli) yfir og skýli framantil á efra þilfari. Undir neðra þilfari er skipinu skipt með fjórum vatnsþéttum þverskipsþilum í eftirtalin rými, talið framan frá: Stafnhylki fyrir sjókjölfestu; hágeyma fyrir brennsluolíu ásamt keðjukassa; fiskilest með botn- geymum fyrir brennsluolíu (framantil) og ferskvatn (aftantil); vélarúm með vélgæsluklefa fremst b.b,- megin og botngeymum í síðum fyrir brennsluolíu o.fl.; og aftast skutgeyma fyrir brennsluolíu ásamt smágeymum fyrir smurolíu o.fl. Fremst á neðra þilfari er geymsla, en þar fyrir aftan íbúðarými, sem nær yfir breidd skips, en framlengt Mesta lengd .......................... 36.63 m Lengd milli lóðlína (HVL) ............ 33.70 m Lengd milli lóðlína (perukverk) .... 32.20 m Breidd (mótuð) ........................ 8.60 m Dýpt að efra þilfari .................. 6.50 m Dýpt að neðra þilfari ................. 4.10 m Eigin þyngd ............................ 511 t Særými (djúprista 4.10 m) .............. 730 t Burðargeta (djúprista 4.10 m) .......... 219 t Lestarrými ............................. 260 m3 Brennsluolíugeymar (m. daggeymi) 86.5 m3 Ferskvatnsgeymar ...................... 24.0 m3 Sjókjölfestugeymir .................... 11.6 m3 Brúttótonnatala ........................ 451 BT Rúmlestatala ........................... 277 brl Ganghraði (reynslusigling) ............ 11.8 hn Skipaskrárnúmer ....................... 2025 meðfram b.b.-síðu. Aftan við móttöku er sýrisvélar- rými, verkstæði b.b.-megin við móttöku og stýrisvél- arrými og vélarreisn þar fyrir framan, en s.b.-megin er rými samtengt vinnslurými. Á efra þilfari eru þilfarshús miðskips með gangi fyrir bobbingarennur á milli. í s.b.-þilfarshúsi er dælurými, og opin veiðarfæraaðstaða þar fyrir framan. í b.b.-þilfarshúsi eru íbúðir. Aftantil á efra þilfari eru skorsteinshús (stigahús). Vörpurenna kemur í framhaldi af skutrennu og greinist í fjórar bobbingarennur, sem liggja í gangi og fram fyrir yfir- byggingu fram að skýli, framantil á efra þilfari, þannig að unnt er að hafa tvær vörpur undirslegnar og tilbúnar til veiða. Yfir afturbrún skutrennu eru toggálgar, en yfir frambrún skutrennu er pokamastur, sem gengur niður í skorsteins- og stigahús. Yfir þilfarshúsum og gangi er bátaþilfar (brúarþil- far), sem er framlengt í síðum aftur að pokamastri. Fremst á bátaþiIfari er brú skipsins. Á brúarþaki er ratsjár- og Ijósamastur, en á skýli, framantil á efra þilfari, er mastur fyrir siglingaljós.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.