Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.1992, Síða 56

Ægir - 01.03.1992, Síða 56
164 ÆGIR 16 fisktegundum, á landsvísu ann- ars vegar og fyrir íslenskar sjávar- afurðir hf. hins vegar. Aftast í bæklingnum er auk þess að finna samantekt á útflutningi ÍS eftir teg- undum og mörkuðum. Upplýs- ingar um veiðar og vinnslu á landsvísu eru byggðar á upplýs- ingum frá Fiskifélagi íslands. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá íslenskum sjávarafurðum hf. Gródurhúsaáhrif Gróðurhúsaáhrif munu skv. upplýsingum úr „Havfiskeren" hafa í för með sér að við 4 stiga hækkun hitastigs í sjónum muni þorskur, koli og síld fara í vaxandi mæli af hlýrri hafsvæðum yfir á kaldari svæði í norðri. Vísinda- maður við dönsku hafrannsókna- stofnunina Thomas Kiörboe segir að breytingar verði sennilegar á samsetningu fisktegunda á dönsk- um hafsvæðum í kjölfar gróður- húsaáhrifa. Núverandi fiskstofnar, eins og þorskur, koli, síld o.fl. muni hverfa af dönskum hafsvæð- um en í staðinn muni hesta- makrfll, ansjósa, sardínur o.fl. koma í vaxandi mæli á dönsk haf- svæði. í framhaldi af þessu segir „Havfiskeren" að aukning þorsk- stofna í Barentshafi staðfesti gróðurhúsaáhrif í norðurhöfum. Þannig eru 40 sinnum fleiri 1 árs þorskar m.v. fyrri rannsóknir. Upplýsingarnar koma frá forstjóra 3/92 norsku hafrannsóknastofnunar- innar Odd Nakken. Tveggja ára þorskur mælist tíu sinnum meiri skv. rannsóknum frá febrúar 1992, m.v. fyrri mælingar. Mesta aukningin í yngri þorskárgöngum er að finna í austurhluta Barents- hafs. Odd Nakken bendir á að það sé fyrst réttlætanlegt að veiða úr stofninum þegar þorskurinn er 5 ára. Noregur Um þessar mundir er verið að smíða 150 tonna bát sem á að flytja lifandi þorsk. Áætlað er að smíðinni Ijúki um áramótin 1992- 1993. Fyrst um sinn er ætlunin að veiða þorsk, ufsa, síld og loðnu sem verður dælt um borð. Áætlað er að hámarks útilega verði 1 vika. Um borð verður fiskurinn flokk- aður eftir tegundum og geymdur í þremur tönkum. Veiðarnar munu fara fram með snurvoð við Norður- Noreg. Nýja-Sjáland Hinn mikli vöxtur í útflutningi sjávarafurða frá Nýja-Sjálandi til Evrópubandalagslanda er tak- mörkunum háður vegna tolla- hindrana í Evrópu. Sjávarvöru- kaupendur í Evrópu eru í vaxandi mæli á þeirri skoðun að sjávaraf- urðir frá Nýja-Sjálandi eru há- gæðavörur. Síðustu þrjú ár hefur útflutningur sjávarvöru aukist yfir 350%. árslok 1991 varð Evrópu- bandalagssvæðið fjórði stærsti markaður fyrir sjávarvörur frá Nýja-Sjálandi. Síðustu 20 árin hefur orðið stöðug aukning í útflutningi með sjávarvörur til og frá Evrópu. Aðallega hefur verið fluttur út áll og heilfrystur fiskur. Þetta breyttist árið 1989 með auknum áhuga á frystum flökum af tegund- inni „hoki". Bretland varð fyrsti þýðingarmikli markaður í Evrópu þar sem viðskiptavinir reyndu að nota hoki í stað þorsks. Með minnkandi framboði á fiski í Evr- ópu hefur ný-sjálenski hokinn í vaxandi mæli komið inn á mark- aðinn vegna áreiðanleika og verð- lagningar. Aðalsamkeppnisfiskur- inn í magni er Norður-Kyrrahafs ufsinn. Ný-sjálenski hokinn verður að bera 15% toll á landað verð áður en hann fer inn á Evr- ópumarkaði. Tollur á Alaska-ufsa er hinsvegar 10%. Tollar í Evrópu- bandalaginu geta hinsvegar orðið allt að 25% á fullunnum afurðum- Ekki eru áform um að skipta á veiðiheimildum við Nýja-Sjáland og tollalækkanir fyrir ný-sjá- lenskar sjávarvörur. Fjarlægð og kostnaður vega þar þungt. Fyrstu ellefu mánuði ársins 1991 óx útflutningur Ný-Sjálendinga um 19.3% og nam 238.100 tonnum- Að verðmæti varð aukningin um 23% og nam um 51 milljarði króna. Fiskstofnar Ástand fiskstofna í Norðursjó, Skagerak og Kattegat er nú með betra móti skv. upplýsingum „Havfiskeren". Góðir árgangareru á leiðinni hvað varðar þýðingar- mikla fiskstofna. Rannsóknarskip frá Danmörku, Noregi, Svfþjóð, Hollandi, Frakklandi og Skotlandi hafa tekið þátt í rannsóknunurn- Niðurstöður fiskifræðinga benda til sterkari árganga hjá flestum fiskstofnum. Þó er enn óvissa um stærð þorskstofnsins svo og ma- krílstofnsins. Ýsuárgangurinn ersá stærsti síðan 1984 og niðurstöður mælinga sýna að smáýsan er u.þ.b. 50% algengari en árið 1991. Þær upplýsingar sem nLJ liggja fyrir verða athugaðar nánar af vinnuhópum undir Alþjóðahaf' rannsóknaráðinu (ICES). Ákvarð- anir um heildaraflakvóta verða teknar í framhaldi af þessum athugunum.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.