Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.1993, Blaðsíða 13

Ægir - 01.08.1993, Blaðsíða 13
'slandi frosin, heil og óunnin til Noregs. Norömenn þýða fiskinn upp, salta hann °§ þurrka og selja svo fram hjá okkur til Suöur-Ameríku. Þetta eru nú staðreyndir malsins. Þetta er verktækni sem við kunnum ekki, erum búnir að glata, og ég ^enni einokunarsamtökunum um að 'U'klu leyti. Þarna er hins vegar framtíð. ^arna er verk að vinna. Enn treysti ég mer ekki til að fara út í þetta, ekki sem stendur að minnsta kosti. Ég hélt ég hefði Pláss fyrir þessa þurrkun í nýja húsinu, en það verður þröngt. Ef til vill verður Þaö sonur minn, Ásbjörn, sem hefur starfað við hlið mér frá upphafi og hefur unnið að þessari nýju fiskverkun okkar, Sem nýtir þessa möguleika. Hans er fram- tíöin." REYTINGUR Möguleikar í Brasilíu Norska útflutningsráðið hvetur nu norska framleiðendur veiðar- f$ra og tækja til notkunar í sjáv- arutvegi að reyna fyrir sér um við- skipti í Brasilíu. í nýrri skýrslu um •ttarkaðsmöguleika í Brasilíu sem raöið hefur sent frá sér kemur fram að í brasilískum sjávarútvegi er skortur á hvers konar tækni- vóru, þekkingu, fiskiskipum og Ve'öarfærum. Norska útflutnings- raöið telur norskan iðnað og sjáv- arútveg hafa margt að bjóða Bras- 'líumönnum og hvetur til atlögu. (Fiskaren) Bandarísk fiskiskip á ný mið i'iskiskipaflotinn á vesturströnd ®andaríkjanna hefur vaxið mjög °rt undanförnu. Samdráttur í Veiöum hefur knúið flotann til að leita fyrir sér annars staðar. Bandarískir verksmiðjutogarar hafa verið að veiðum við Rúss- land frá því í vor og aðrir hafa verið að veiðum undan ströndum Suður-Ameríku í sumar. Um helmingur skipa í bandaríska fiskiskipaflotanum er í eigu ein- yrkja sem einungis gera út eitt skip. Stórum útgerðarfyrirtækjum hefur vaxið fiskur um hrygg að undanförnu og eiga þau nú um 13% af togara- og frystitogaraflot- anum. Það eru einkum þessi fyrir- tæki sem leita fyrir sér um veiðar á fjarlægum miðum. (World Fishing) Kínverjar setja met Fiskveiðar Kínverja hafa aukist stöðugt síðasta áratug. Samkvæmt tölum frá kínversku hagstofunni nam aflinn 15 milljónum tonna á síðasta ári, sem er meira en 15% aukning frá árinu 1991. Á árinu 1987 náði aflinn 10 milljónum tonna og árið 1989 varð hann 11,2 milljónir tonna og varð þá í fyrsta skipti meiri en afli Japana. Fiskafli Kínverja í fyrra skiptist þannig, að 6,9 milljónir tonna eru sjávarfang, 2,1 milljón eldisfiskur og 6 milljónir tonna eru vatna- fiskur. Hlutdeild Kínverja í heimsaflanum er um 15%. (Infofish Trade News) Afli á Flœmska hattinum Þrjú íslensk rækjuskip sem undanfarið hafa stundað veiðar á Flæmska hattinum, alþjóðlegu veiðisvæði utan lögsögu Nýfunda- lands, hafa gert það gott í sumar. Aflabrögð hafa verið góð og var aflaverðmæti þeirra í byrjun ágúst um 200 milljónir króna. Skipin eru Sunna, Pétur Jónsson og Há- kon. Fjórða skipið, Arnarnes, var væntanlegt á miðin síðla ágúst- mánaðar. Aflinn er 10-12 tonn á úthaldsdag. Rækjan er seld til Jap- ans og Evrópu, en hluti er sendur til íslands. (Morgunblaðið) ÆGIR ÁGÚST 1993 3 35

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.