Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.1993, Blaðsíða 46

Ægir - 01.08.1993, Blaðsíða 46
Bragi Árnason: „Allt bendir því til þess að full ástœða sé til þess fyrir íslendinga að hefja nú þegar vemlegar rannsóknir á því hvemig við gœtum hafið notkun vetnis í stað olíu, til þess að vera við- búnir jafnskjótt og slíkt reyn- ist skynsamlegt." Hitaveitur í kaupbœti Þar sem kostnaður við framleiðslu vetnisgass er aðeins um helmingur af framleiðslukostnaði fjótandi vetnis, þá er gert ráð fyrir að einungis yrði framleitt vetnisgas sem geymt yrði um borð í skipunum, bundið í magnes- íumhydríði. Þessi geymsluaðferð gæti auk þess haft í för með sér verulega viðbótarhagkvæmni vegna þess að þá væri hægt að endurheimta talsverðan hluta þeirrar orku sem nú tapast sem útblástursvarmi frá vélunum við brennslu eldsneytisins úti á sjó og nota þessa orku í landi, svo sem fyrir hitaveitur í byggðarlögum nálægt eldsneytishöfnunum. Til þess að losa vetni úr magn- esíumhydríði þarf 37,2 gigajoule af orku fyrir hvert tonn af vetni. Þetta mætti gera þannig að um helmingur útblástursvarmans frá vélinni yrði notaður til að hita hydríðið í 300°C til að losa vetnið sem er bundið í málm- hydríðinu. Þegar skipin koma í höfn og taka eldsneyti losnar þessi orka aft- ur úr magnesíum-málminum og þá yrði hún fjarlægð með því að fram- leiða til dæmis 220°C gufu sem yrði leidd í land og notuð til að hita vatn fyrir hitaveitur. Á þennan hátt gæti allur fiskiskipafloti landsmanna skilað á land varmaorku sem nemur um fjórða hluta af allri orkuþörf Hitaveitu Reykjavíkur. Vetnisverksmiðjur í eldsneytis- höfnum umhverfis landið gætu því, auk þess að framleiða eldsneyti fyrir fiskiskipin, séð viðkomandi sjávar- plássum fyrir nægri orku fyrir hita- veitur, en stór hluti sjávarplássa hér á landi hefur ekki aðgang að jarðhita. Svo tekið sé einstakt dæmi þarf Hitaveita Vestmannaeyja nú varma- orku sem nemur 0,2 pedajoule á ári. Hraunhitaveitan í Vestmannaeyjum mun nú hafa runniö skeið sitt á enda. Fiskiskipafloti Vestmanneyinga notar um 20.000 tonn af olíu á ári og gæt' skilað á land ríflega allri þessari varmaorku ef hann brenndi vetni. íslendingar í viöbragðsstööu Bragi Árnason segir að vetni getx1 framtíðinni orðið eitt megineldsneyh iðnvæddra þjóða. Fari svo hljóti öll tækni, sem þarf til að nota vetni, að taka skjótum framförum. Þess vegna þurfi íslendingar að nýta sér þessar tækniframfarir og fljótlega að hefja notkun vetnis í nokkrum mæli ístat) innfiuttrar olíu. íslendingar gætu jafn' vel í fyrirsjáanlegri framtíð orðið óháðir innfluttu eldsneyti. Hér er þvl ekkert smámál á ferðinni því verið el’ að tala um að draga úr innflutning1 sem nú nemur tæpum tíu milljörðum króna á ári. En nú er vetni ekki samkeppnlS' hæft í verði við það eldsneyti sem nU er notað. Verður breyting á því? Bragi Árnason: „Já, ýmislegt bend11 til þess að svo verði innan fárra ára' tuga. í því sambandi ræður hugsarl' lega rnestu aukin þörf fyrir hreirh eldsneyti og minnkandi olíuforði jarr)' ar, en einnig fyrirsjáanleg lækkun a framleiðslukostnaði vetnis og betn orkunýtni þess en olíu. Þar erum vin jafnvel að tala um tvöfalt betri nýtn1 þegar vetni er brennt í efnarafölum 1 stað sprengihreyfla. Allt bendir þvítrt þess að full ástæða sé til þess fyrir Is' lendinga að hefja nú þegar verulegar rannsóknir á því hvernig við gætum hafið notkun vetnis í stað olíu til þeSS að vera viðbúnir jafnskjótt og slrt<t reynist skynsamlegt. Það er talsveh flókið fyrir þjóð að skipta um eldS' neytistegund. Slíkt verður ekki gert 1 einni svipan og kann að taka nokkr*1 áratugi og það tekst alls ekki nema nægileg tækniþekking sé fyrir hend' hjá þjóðinni sjálfri." 368 ÆGIR ÁGÚST 1993

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.