Ægir - 01.08.1993, Page 30
fari (bátaþilfari) er brú á reisn, en fremst í reisn er and-
veltigeymir. Á brúarþaki er ratsjár- og ljósamastur.
Vélabúnaöur
Framdrifs- og orkuframleiðslukerfi: Aöalvél skipsins er
frá Wartsila Wichmann, sex strokka tvígengisvél með
forþjöppu og eftirkælingu, sem tengist niðurfærslugír,
með innbyggðri kúplingu frá Ulstein, og skiptiskrúfu-
búnaði frá Wichmann.
Tœknilegar upplýsingar (aöalvél með skrúfubúnaði)
Gerð vélar ... 6L28B
Afköst ... 1800 KW (2450 hö)
Snúningshraði ... 600 sn/mín
Gerð niðurfærslugírs ... 600AGSC KP
Niðurgírun ... 4.42:1
Gerð skrúfubúnaðar ... PR82/4
Efni í skrúfu ... Ni Al-brons
Blaðafjöldi ... 4
Þvermál ... 3300 mm
Snúningshraði 136 sn/mín
Skrúfuhringur .. Wichmann
Á niðurfærslugír er eitt aflúttak (1:3.0), sem við
tengist Leroy Somer riðstraumsrafall af gerð LSA 50L-
10, 1200 KW (1500 KVA), 3 x 440V, 60 Hz.
í skipinu eru tvær hjálparvélar, báðar í vélarúmi, en
önnur í lokuðum klefa. Vélarnar eru frá Mitsubishi af
gerð S6NMPTK, sex strokka fjórgengisvélar með for-
þjöppu og eftirkælingu, 459 KW (624 hö) við 1800
sn/mín. Við hvora vél tengist riðstraumsrafall frá Le-
roy Somer, gerð LSA 49L9, 400 KW (500 KVA), 3 x
440V, 60 Hz.
Fyrir upphitun íbúða o.fl. er afgasketill frá Pyro,
gerð A200/1500, afköst 183 KW.
Stýrisbúnaður: Stýrisvél er rafstýrð og vökvaknúin
frá Tenfjord, gerð H-165-I-6M 180/2GM415, snún-
ingsvægi 6.0 tm, og tengist Barkemeyer stýri.
Að framan er skipið búið vökvaknúinni hliðar-
skrúfu frá Brunvoll.
Vélakerfi dieselvéla: í skipinu eru tvær skilvindur frá
Alfa Laval, önnur af gerð MAB 104B fyrir brennslu-
olíukerfið og hin af gerð MAB 204S fyrir smurolíukerf-
ið. Ræsiloftþjöppur eru tvær frá Sperre af gerð HL2/77,
____________Tœknilegar upplýsingar_______________
Gerð ................... SPO 200
Afl..................... 200 hö
Blaöafjöldi/þvermál .... 4/1000 mm
Niðurgírun ............. 3.56:1
Snúningshraði........... 510sn/mín
Vökvaþrýstimótor........ Brúninghaus A2F 355 W5
Afköst mótors........... 147 KW við 1813 sn/mín
afköst 27 m3/klst við 30 bar þrýsting hvor. Fyrir véla-
rúm og loftnotkun véla eru tveir rafdrifnir blásarar fta
GF Marine, afköst 21000 m3/klst hvor.
Rafkerfi: Rafkerfi skipsins er 3 x 440 V, 60 Hz fyrir
mótora og stærri notendur, og 220 V, 60 Hz fyrir lýs-
ingu og til almennra nota í vistarverum. Fyrir 220V
kerfið eru tveir 50 KVA Siemens spennar, 440/220V.
Hjálparvélarafala er unnt að samkeyra og skammtíma
samfösun er milli aðalvélarrafals og hjálparvélarafala-
í skipinu er 80A, 3 x 380V landtenging.
Ýmis skipskerfi: í skipinu er austurskilja frá Victor
Oil Water Seperator, afköst 3 m3/klst. Fyrir geyma er
tankmælikerfi frá Peilo Teknikk, gerð Soundfast 830 -
106.1/302. í skipinu er ferskvatnsframleiðslutæki frá
Atlas af gerð AFGU 1E-7, afköst 7 tonn á sólarhring-
Fyrir vélarúm er Halon 1301 slökkvikerfi.
Kerfi fyrir vistarverur: íbúðir eru hitaðar upp með
miðstöðvarofnum, sem fá varma frá katli, svo og
neysluvatn, og til vara og í höfn er 300 1 Pyro hitakút-
ur með 4 x 10 KW rafelementum. íbúðir eru loftræstar
með rafdrifnum blásurum frá G.F. Marine. Fyrir inn-
blástur er einn blásari, afköst 3000 m3/klst, nieö
vatnshitaelementi, og fyrir eldhús, borðsal og snyrú'
herbergi eru sogblásarar. Vinnsluþilfar er loftræst meö
einum sogblásara, afköst 5000 m3/klst, og búið hita-
blásurum. Fyrir hreinlætiskerfi er ferskvatnsþrýstikerfi
frá Jarlsö.
Vökvaþrýstikerfi: Fyrir vökvaknúinn vindubúnað og
hliðarskrúfu er vökvaþrýstikerfi (háþrýstikerfi) fra
Rapp Hydema A/S, sem komið er fyrir í dælurými b.b '
megin á togþilfari. Um er að ræða fimm rafdrifnar
Abex Denison dælur, 1180 sn/mín, knúnar af Leroy
Somer rafmótorum, sem eru eftirfarandi:
Fjórar T6ED-066-045 dælur, sem skila 395 1/mín
hver, þrýstingur 85 bar, knúnar af 155 KW rafmótor-
um.
352 ÆGIR ÁGÚST 1993