Ægir - 01.08.1993, Side 34
Fréttatilkynning frá Tæknivali hf. og Hug hf.
SAMSTARF UM ÞRÓUNHUGBÚNAÐAR
FYRIR SJÁVARÚTVEGSFYRIRTÆKI
Tæknival hf. og Hugur hf. hafa
ákveðih að taka upp samstarf um
þróun hugbúnaðar fyrir sjávarút-
veg. Markmið þessa samstarfs er að
bjóða fyrirtækjum í útgerð og fisk-
vinnslu heildarlausn á sviði upp-
lýsingamála, lausn sem bæði nær
yfir framleiðslu og fjárhagslega
þætti.
Helsti styrkur hugbúnaðardeild-
ar Tæknivals hf. er hugbúnaður
fyrir sjávarútveg, hann hefur verið
í stöðugri þróun allt frá því að
fyrsti hluti kerfisins, AGNES, leit
dagsins ljós árið 1985. Mikil þekk-
ing og reynsla liggur að baki hug-
búnaðarkerfanna sem nú eru í
notkun í hundraðavís um allt
land. Ákveðið hefur verib aö taka
upp nýtt nafn fyrir allan hugbún-
að Tæknivals fyrir sjávarútveg.
Hafdís skal heildarkerfið heita. Öll
eldri kerfin, Agnes, Torfi, Birgir,
Bergur, Lundi, Prófastur og
Muggur, eru hlutar þessa nýja kerf-
is Hafdísar.
Hugur hf. er vafalaust best
þekktur fyrir tímaskráningarkerfib
sitt (Útvörð - Bakvörb). Um 250
fyrirtæki nota kerfin hérlendis, þar
af nokkur í sjávarútvegi.
Fyrir einu og hálfu ári hóf Hug-
ur hf. samstarf við danska hugbún-
aðarfyrirtækiö Damgaard Data um
markaðssetningu á CONCORDE
XAL hugbúnaði hérlendis. Auk
allra almennra verkefna (fjárhags-
bókhald, viðskiptamenn, lánar-
drottnar o.s.frv.) er hugbúnaður-
inn þannig úr garði gerður að
hann má aðlaga aðstæðum á
hverjum stað eins og þörf krefur.
Á grunni þessara tveggja lausna,
CONCORDE XAL og Hafdísar,
Gervitunglamóttakari: Shipmate RS 5100 (GPS).
Leiðariti: Dolphin HM 087.
Leiðariti: Sodena Turbo 2000 (tölvuplotter) með 21"
skjá.
Dýptarmælir: Simrad EQ 100 pappírsmælir, 38 KHz
tíðni, meb CF 130 fisksjá.
Dýptarmælir: Simrad ES 500 litamælir, 38 KHz tíðni.
Höfuðlínumælir: Furuno CN 14.
Aflamælir: Scanmar PD01 með RU 400 móttakara og
tilheyrandi nemum.
Talstöð: Skanti TRP 8400, 400W mið- og stuttbylgju-
stöb.
Örbylgjustöö: Sailor RT 2047, duplex.
Örbylgjustöðvar: Tvær Sailor RT 2048, simplex.
Örbylgjustöð: Icom, IC-M 700/F.
Veðurkortamóttakari: JRC, FAX-9.
bjóða Hugur og Tæknival fyrir-
tækjum í sjávarútvegi heildarlausn-
Þessa heildarlausn má nota á öll-
um helstu stýrikerfum, eins og
DOS, OS/2 og Unix. Windows út-
gáfa er í vinnslu. Þetta skiptir
miklu máli þegar notendur horfa
til framtíbar og velta fyrir sér hvað
verði ofan á í vaxandi samkeppni a
tölvumarkaði.
Tæknival og Hugur hafa lokið
samræmingu á gagnaflutningi og
gagnaskilum milli HAFDÍSar og
CONCORDE XAL bókhaldskerf-
anna. Það er notandans að skil'
greina á ítarlegan en auðveldan
hátt hvaða gögn á að færa á mill'
og hvar yfirfærslan bókast 1
CONCORDE XAL. Þetta er auðvelt
í uppsetningu og notandinn hefur
fulla stjórn á hvaða gögn færast
milli kerfa. Þetta leiðir til þess að
aðeins þarf að skrá upplýsingat
einu sinni inn í kerfið, eftir það er
aðeins um úrvinnslu gagna að
ræða.
Á sjávarútvegssýningunni 1
september nk. munu Tæknival og
Hugur m.a. sýna fyrsta afrakstur
samstarfs fyrirtækjanna.
Auk ofangreindra tækja er Vingtor VMP-207 kall'
kerfi, Skanti WR 6000 vörður, Sagem Salfax 1500 tele-
fax, Sailor H1240 Standard A gervitunglatelex og Sait
EB Nera Standard C gervitunglatelex. í skipinu er olíu-
rennslismælir frá Ben í tengslum við vegmæli. Þá er i
skipinu sjónvarpstækjabúnaður frá Hitachi með þrem-
ur tökuvélum og tveimur skjám í brú.
Aftast í brú eru stjórntæki frá Rapp Hydema fyr*r
togvindur, grandaravindur, bobbingavindur, hífingat-
vindur og höfublínuvindu. Jafnframt eru togvindut
búnar átaksjöfnunarbúnaði af gerð PTS 3000 frá RapP
Hydema.
Af öryggis- og björgunarbúnaði má nefna: EinU
DSB slöngubát með utanborðsvél, fjóra átta manna
Viking gúmmíbjörgunarbáta, reykköfunartæki, flot'
galla, Skanti neybartalstöð og Kannad neyðarbauju.
356 ÆGIR ÁGÚST 1993