Ægir - 01.08.1993, Síða 37
fyrir dyrum nýtt stig í mælingunum
Sem fólgið er í því að fara með mæl-
lngar- og tölvubúnaðinn í veiðiferðir
°g skrásetja þær frá upphafi til enda.
"Þetta teljum við mjög mikilvægt,"
Segh Emil Ragnarsson. „Einkum með
iiiliti til þeirrar öru þróunar sem verið
*lefur að undanförnu. Meðal annars
eru togararnir farnir að fiska á mun
^ýpri slóð en áður með stærri veiðar-
faeri."
Tvílembingar mœldir
I sumar fóru tæknideildarmenn í
•t'iðangra til Akureyrar í þeim tilgangi
gera mælingar í skipum sem voru
fara á veiðar með tveggja báta
vórpu, svonefndan tvílembing. Þá var
togkraftur skipanna mældur miðað
v,ð ákveðna stillingu á snúnings-
hraða, skurð skrúfu og togspyrnu hjá
hyoru skipi um sig. Síðan útbjuggu
t$knideildarmenn töflu fyrir hvorn
skipstjóra þar sem þessi atriði voru
Samræmd og auðveldar skipstjórun-
Urn að vera samstíga við veiðarnar.
Veröskrá yfir mœlingar
Urn síðustu áramót var samin sér-
stök verðskrá yfir mælingar sem
t$knideild Fiskifélagsins tekur að sér.
^ur var í gildi sérstakt tækjagjald,
a°k þess sem verkkaupi greiddi yfir-
Vlnnu. Fiskifélagið stóð hins vegar
straum af dagvinnulaunum starfs-
^^nna við mælingarnar.
Víðtœkt notagildi mœlinga
En er tæknideildin ekki í sam-
ePpni á þessu sviði við sjálfstætt
starfandi ráðgjafarfyrirtæki?
"Nei, sjálfstætt starfandi ráðgjafar
eru á öðrum sviðum en við og enginn
annar býður þessa þjónustu. Ennfrem-
Ur má líta svo á að mælingar okkar
afi míög víðtækt gildi fyrir útgerð í
andinu í heild. Hver mæling snýst
um ákveðið vandamál og lausn þess
getur komið mörgum til góða. Ég get
nefnt mælingar sem við gerðum á
skipi þar sem verið var að reyna nýja
gerð af skrúfu sem aldrei hafði verið
notuð hérlendis áður, en menn
bundu vonir við hana. Við gerðum
viðamiklar mælingar á nýju skrúf-
unni, auk þeirrar gömlu hefðbundnu,
við breytileg notkunarsvið. Niðurstað-
an varð sú að ekki væri heppilegt að
skipta yfir á þessa nýju skrúfu. Þetta er
talandi dæmi um víðtækt notagildi
svona mælinga. Enginn annar veitti
þessa þjónustu og ég tel afar mikil-
vægt að til sé aðili sem gerir mælingar
af þessu tagi af mikilli nákvæmni svo
menn þurfi ekki að treysta alfarið á
tölur frá fyrirtækinu sem hluturinn er
keyptur af."
Togspyrnumœling í Hafharey
SU-110 árið 1993 í höfhitmi
á Stöðvarfirði. Annar
togvírinn er tekinn í land í
blökk sem fest er í
bryggjupolla og aftur til baka
og festur í átaksmœli sem
aftur er tengdur í hinn
togvírinn. Þannig er togað
fyrir fóstu (poUatog) til að
mæla toggetu skipsins.
Könnun á bœtiefnum
Nýjasta verkefni tæknideildar er
könnun á ýmsum bætiefnum í smur-
olíur sem í boöi eru á markaðinum,
svo og á búnaði til eldsneytissparnað-
ar. Um er að ræða samstarfsverkefni
LÍÚ, Vélskólans og Fiskifélagsins. Til-
raunir verða gerðar um borð í
nokkrum fiskiskipum og niðurstöð-
ÆGIR ÁGÚST 1993 3 59
Tæknideild.