Ægir - 01.08.1993, Qupperneq 38
urnar munu væntanlega hafa nota-
gildi fyrir allan flotann. Reiknað er
með að fyrstu niðurstaðna verði að
vænta í haust.
Tœknideildin nauðsynleg
En hvernig sér Emil Ragnarsson
fyrir sér framtíð tæknideildarinnar?
„Öðru hverju heyrast raddir sem
vilja leggja þessa starfsemi niður. Ég
held það væri misráðið, samanber það
sem ég sagði í upphafi um nauðsyn
aukinna rannsókna á sviði fiskveiða.
Ennfremur í ljósi þeirrar viðamiklu
upplýsingaöflunar og úrvinnslu sem
hér fer fram og enginn annar hefur
REYTINGUR
SR-mjöl tekur við
Hlutafélagið SR-mjöl hf. tók
hinn 1. ágúst við rekstri Síldar-
verksmiðja ríkisins í samræmi við
lög sem samþykkt voru á Alþingi í
vor. Hlutafé er 650 milljónir
króna, allt í eigu ríkisins. SR-mjöl
hf. yfirtekur rekstur Síldarverk-
smiðja ríkisins á fiskimjölsverk-
smiðjum sem reknar eru á fimm
stöðum á landinu, Skagaströnd,
Siglufirði, Raufarhöfn, Seyðisfirði
og Reyðarfirði, auk vélaverkstæðis
á Siglufirði. Breyting þessi hefur í
för með sér að fyrirtækið verður
framvegis rekið við sömu lagaskil-
yrði og langflestar fiskimjölsverk-
smiðjur í landinu, það er innan
ramma hlutafélagalöggjafarinnar.
Stjórnarformaður SR-mjöls hf. er
Arndís Steinþórsdóttir, deildar-
stjóri í sjávarútvegsráðuneytinu,
og aðrir í stjórn eru Arnar Sigur-
mundsson, Vestmannaeyjum,
Hermann Sveinbjörnsson, Reykja-
vík, Pétur Bjarnason, Akureyri, og
Þórhallur Arason, Reykjavík.
Hagnaöur hjó Granda
Grandi hf. skilaði hagnaði að
fjárhæð um 51 milljón króna á
fyrstu sex mánuðum ársins. Þá
hafði verið gjaldfært gengistap
sem nam 154 milljónum. Á síð-
asta ári nam tap Granda hf. um
100 milljónum króna. í frétt frá
Granda eru tilgreindar þrjár á-
stæður fyrir jákvæðri afkomu á
fyrri helmingi ársins: í fyrsta lagi
varð aflaaukning fyrstu sex mán-
uðina, sem nam 48 af hundraði.
Heildarafli varð 18.700 tonn á
móti 12.600 tonnum í fyrra.
Helmingur aukningarinnar, eða
um 3000 tonn, var úthafskarfi. í
öðru lagi er nú tveimur togurum
fleira í flota Granda hf. en var í
fyrra. Togararnir eru nú átta. í
þriðja lagi hefur náðst mikil
rekstrarhagræðing eftir að félagið
sameinaði alla landvinnslu í eitt
hús á Norðurgarði á síðasta ári.
Grandi hf. fékk úthlutað 23.455
tonna aflakvóta á næsta fiskveiði-
með höndum, auk verkefna sem
deildinni eru falin af hinu opinbera-
Þá berst deildinni jafnan mikill fjöld'
fyrirspurna um margvísleg tæknile?
málefni, jafnt frá innlendum sem er-
lendum aðilum. Ætlunin er að reyna
framvegis að afla í auknum mael1
styrkja til rannsóknaverkefna úr hm-
um ýmsu sjóðum sem veita fé til
rannsóknastarfsemi. Þá tel ég eðlilegt
að Fiskveiðasjóður styrki þessa starf-
semi áfram. Þegar svo tekjur fyrir ut'
selda þjónustu bætast við tel ég ekki
vanta ýkja mikið upp á til þess að
Fiskifélaginu sé kleift að halda starf-
semi deildarinnar áfram."
ári sem er 3.500 tonnum minna
en á þessu.
Háskólinn í Eyjum
Á vegum Háskóla íslands eru 1
undirbúningi ýmiss konar verk-
efni í Vestmannaeyjum tengd
sjávarútvegi, fiskvinnslu, hafrann-
sóknum og öryggismálum sjo-
manna. Þetta er liður í samvinnu-
verkefni skólans og Vestmanna-
eyja. Ráðgert er að nokkrir nem-
endur Háskóla íslands, sem stunda
nám til meistaraprófs í líffræðn
verkfræði og fleiri greinum, hafi
aðstöðu í Vestmannaeyjum. Þá ef
unnið að því að koma á laggirnat
húsnæði fyrir starfsemi skólans a
staðnum. Fyrirhuguð verkefm
verða á sviði hagræðingar í frysti-
húsum og gæðastjórnunar, fisk-
sjúkdómarannsókna, þróunar ör-
yggisbúnaðar fyrir sjómenn, auk
þess sem þekking og reynsla sjo-
manna á fiskimiöunum verður
skráð. Þá hefur verið ákveðið að
hefja undirbúning alþjóðlegs verk-
efnis í djúpsjávarrannsóknum.
(Morgunblaðið)
360 ÆGIR ÁGÚST 1993