Ægir - 01.08.1993, Page 40
Samstarf Islendinga og
Þjóöverja
Nýlega hófust tilraunir sem
miöa að því að knýja fiskiskipa-
flota landsmanna með vetnisgasi,
framleiddu hér á landi. Um er að
ræða samstarfsverkefni Háskóla ís-
lands og tveggja þýskra rannsókna-
stofnana, en auk þess taka starfs-
menn Vélskóla íslands og Áburðar-
verksmiðjunnar í Gufunesi þátt í
tilraununum sem fara fram í hús-
næði verksmiðjunnar. Forystu um
þessar tilraunir af hálfu íslendinga
hafa prófessorarnir Bragi Árnason
og Valdimar K. Jónsson.
Bragi Árnason segir að hlutverk
Islendinga í þessu samvinnuverk-
efni sé að knýja 250 hestafla vél
með vetnisgasi og komast að raun
um hvað gera þurfi til að slíkt sé
unnt og hvernig best verði að því
staðið. Hlutverk Þjóðverjanna er
hins vegar að þróa geymslutækni
sem hentar. Rábgert er að þessi
hluti tilraunanna standi yfir í um
það bil eitt og hálft ár.
Áhugi á verkefninu
íslensk fyrirtæki hafa sýnt til-
raunaverkefninu talsverðan áhuga.
Bragi Árnason segir að Hekla hf.
hafi útvegað vélina, sem notuð er í
tilraununum, á hálfvirði og hafi
fyrirtækið séð um ab endurbæta
hana og aðlaga að verkefninu á
eigin kostnað. Þá hafi Eimskip séð
um að flytja vélina til landsins
endurgjaldslaust og loks hafi fjár-
málaráðuneytib fellt nibur virðis-
aukaskatt af vélinni. Þarna sé því
um að ræða eins konar styrktarað-
ila tilraunanna.
Vetni er hreint eldsneyti
Tilraunir með framleiðslu á
vetni til notkunar í stað eldsneytis
úr jarðefnum fara nú fram víða um
heim. Ástæðurnar eru einkum
tvær: Annars vegar þverrandi olíu-
og jarðgaslindir jarðar og hins veg-
ar auknar kröfur um að dregið
verði úr mengun sem koltvíoxíð,
köfnunarefnisoxíb og fleiri efni
valda, en þessi efni streyma út í
andrúmsloftið vib brennslu elds-
neytis úr jarðefnum. Við brennslu
vetnis myndast hins vegar nær
einvörðungu hreint vatn
íslenskar rannsóknir vekja
athygli
Bragi Árnason prófessor bendir
á að þar sem íslendingar eigi rnikl-
ar ónýttar orkulindir beri þeim að
fylgjast vel með notkun vetnis.
Bragi hefur staðiö fyrir margvísleg-
um rannsóknum í þessum efnum
um árabil og niðurstöður hans
hafa vakið athygli á alþjóðlegum
vettvangi. Þetta starf ber meðal
annars ávöxt í samstarfsverkefninu
í Gufunesi sem tvær Max-Planck
vísindastofnanir í Þýskalandi taka
þátt í ásamt Háskóla íslands.
Ný tegund stóriöju
Bragi telur ekki einvörðungu
möguleika fyrir íslendinga til að
nýta hérlendis innlenda orku í
stað innflutts eldsneytis heldur
geti hér verið á ferðinni nýr mögu-
leiki á íslenskri stóriðju sem hefði
margvíslega kosti framyfir þá stór-
iðju sem til þessa hefur einkum
verið rekin.
„Stofnkostnaður vetnisverk-
smiðju er lítill í samanburbi við ál-
ver", segir Bragi Árnason. „Auk
þess er rekstur vetnisverksmiðju
þess eðlis að hana má reka á ódýrri
umframorku, svo sem nætur- eða
sumarrafmagni, þegar til dæmis ál-
veri verður að tryggja forgangsafl.
Vetnisverksmiðjur má stöðva og
setja í gang að nýju með stuttuffl
fyrirvara án þess að nokkrar
skemmdir verði. Vel má ímynd3
sér að hér geti í framtíðinni risið
upp orkufrekur iðnaður sem fraffl'
leiddi eldsneyti til útflutnings. Að
undanförnu hefur mikil umrfflða
verið um útflutning á raforku uffl
sæstreng. Eldsneytisibnaðurinn
myndi skapa mun fleiri atvinnu-
tækifæri í landinu, auk þess seffl
verðmæti útflutningsafurðarinnar
væri mun meira."
Mikill innflutningur ó
eldsneyti
íslendingar fullnægja orkuþörf
sinni að 58 hundraðshlutum me^
innlendri vatnsorku og jarðvarffl3-
42 hundraðshlutum er fullnægt
með innflutningi á eldsneyti. Olffl'
innflutningur nemur um 600.000
tonnum á ári, þar af fara uffl
230.000 tonn til fiskiskipaflotans
og um 300.000 tonn til ýmiss kon-
ar samgöngutækja. Bragi og Valdi'
mar setja fram þá hugmynd aö
vetni, framleitt á íslandi, g*tí1
fyrstu komið í stab olíu fyrir fisk1'
skipaflotann og síðar fyrir saffl-
göngutækin.
Löng reynsla af
vetnisframleiðslu ó
íslandi
Víðast hvar þar sem vetni ef
framleitt nú er það gert með því aö
láta jarbgas hvarfast við vatnsgufu-
Ókosturinn vib þá aðferð er sá að
við framleiðsluna myndast koltvi'
oxíð, en koltvíoxíð eykur gróður-
húsaáhrif, auk þess sem takmark-
aður forbi er af jarðgasi á jörðinffl-
Af þessum sökum líta menn hýrU
auga til framleiðslu vetnis með raf'
greiningu. Sú framleiðsla fer
362 ÆGIR ÁGÚST 1993