Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.1952, Side 10

Tímarit lögfræðinga - 01.09.1952, Side 10
130 Tímarit lögfrceöinga leysi, trassaskapur,1) ónærgætni o. s. frv. Áburður um einn eða fleiri þessara ókosta og annarra slíkra horfir vafalaust til virðingarhnekkis og mundi því varða við 235. gr. hegnl. Sumir þeirra dóma, sem vitnað hefur verið til, varða að vísu opinbera starfsmenn, sem bornir hafa verio ávirðing- um þeim, sem nefndar hafa verið. En yfirleitt mundi áburður um þær á hendur einstaklingum einnig horfa til virðingarhnekkis og því vera refsiverður eftir 235. gr. En áburður eða umsögn um fleira en siðferðisbresti getur orðið manni til virðingarhnekkis. Stundum rnundi mega beita ákvæðum 229. eða 230. gr., en alls ekki allt af. Er þá kornið að mörkum ins saknæma og ins ósaknæma. 1 athugasemdum við 235. gr. segir, að ekki sé ætlazt til þess, að svið ærumeiðinga verði rýmkað frá því sem áður hafi verið samkværnt skýringum á 217—219. gr. hegnl. 1869, enda þótt orðalag 1. málsgr. 235. gr. kynni að veita efni til þess. 1 dómum uppkveðnum meðan hegnl. 1869 giltu, virðast einstöku takmarkatilvik vera nefnd. Árið 1901 var kveðinn upp dómur í landsyfirréttinum meðal annars um það, hvort það væru ærumeiðandi ummæli, er X hafði varpað fram þeirri spurningu á opinberum fundi, hvort fundarmenn vilau heldur, að á væri rekinn úr bæn- um en B að sið Forn-Grikkja, er hefðu að lögum sínum getað með þeim hætti hreinsað bæjarfélag sitt af mönnum, sem þeir töldu því stafa háski af. Landsyfirdómur taldi eldki felast í spurningu þessari ærumeiðingu, sennilega af því, að ekki þyrfti að felast í henni aðdróttun um siðferðis- brest eða sérstaka ámælisverða athöfn.2) En ljóst sýnist. þó, að spurningin hafi verið löguð til þess að hnekkja virðingu A, og líklegt þykir, að dómstólar mundu nú telja fyrirspyrjanda refsiverðan samkvæmt 235. gr., einkum er fyrirspurnin er athuguð í sambanai við önnur ummæli X um A. á fundinum. I dómi frá 1895 er ritstjóri einn sýkn- 1) Sbr. Dómas. VII. 60. 2) Dómas. VI. 462.

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.