Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.1952, Page 20

Tímarit lögfræðinga - 01.09.1952, Page 20
140 Timarit lögfrœöinga talið, a5 félagar í stúkunum geti, svo bindandi sé, afsalað sér almennt rétti sínum til þess að leita úrlausnar almennra dómstóla um árásir á mannoró sitt.“ Nú var afsalið hér þó ekki algert, með því að aðili gat þó leitað úrlausnar nefndar þeirrar, sem með slík mál skyldi fara samkvæmt lögum góð- temlarareglunnar. Fyrir því er enn síður ætlandi, að algert fyrir fram veitt afsal sé bindandi. Hins vegar virðist lík- lega mega ráða af orðum dómsins, að fyrir fram veitt af- sal geti stundum bundið aðilja. En dóminum var engin þörf á að greiða nánara úr því máli. Hann átti einungis að leysa úr því, hvort afsal 1 þessu tiltekna máli væri bindandi eða ekki. Afsal á æruvernd má hugsa sér með ýmsum hætti. Það kann að vera veitt tilteknum manni eða mönnum til- tekmn tíma um allar ærumeiðingar eða einungis ærumeið- ingar í sambandi við tiltekinn mann tiltekin eða tiltekið efni, eins og t. d. í sambandi við umræður um tiltekið mál á tilteknum fundi. Afsal, sem gilda á langan tíma gagnvart fleirum mönnum en einum og um fleiri mál en eitt, mundi fráleitt vera bindandi. En naumast er einu sinni rétt að telja afsal æruverndar fyrir fram nokkurn tíma bindandi. Sá, sem afsal veitir, veit í rauninni aldrei, hverju hann afsalar sér. Sá, sem við afsalinu tekur, getur misbrúkað það svo, að hann ber afsala öllum þeim svívirðingum, sem hann getur upp hugsað. Sá, sem staðhæfir það, að sækjandi hafi afsalað sér æruvernd, verður að sjálfsögðu að sanna það. 1 opinberu máli út af ærumeiðingum, sbr. hér á eftir um sóknaraðild ærumeiðingamála, hlýtur dómari að rann- saka þetta atriði, ef efni standa til, en í einkamálum mundi sönnunarbyrði um þetta hvíla á varnaraðilja. Annars er ástæða til þess að rekja nokkur þau atriði í ærumeiðingamálum, sem sanna þarf og um sönnunarbyrði varðandi þau. In sérstöku fyrirmæli laga um ærumeið- ingar gejnna ekki sérreglur um sönnun, og verður því að leysa úr þeim atriðum, sem hér skipta máli, í samræmi við þær reglur, sem annars eru taldar gilda eða hafa má til hliðsjónar, þegar meta skal, hvað sanna þurfi, hvernig og hverjum beri að sanna það, og hvort næg sönnun sé feng-

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.