Tímarit lögfræðinga - 01.09.1952, Page 42
162
Tímarit lögfræöinga
brot. Hins vegar getur það ekki gefið upp þá kröfu, sem
ærumeiddur maður hefur eða kann að hafa á hendur vam-
araðilja. Þó að opinberrar málshöfðunar sé synjað, máli er
frávísað eða varnaraðili sýknaður af ákæru ákæruvaldsins,
þá getur aðili samt höfðað einkamál út af meiðyrðum.2)
Hins vegar getur aðili gefið upp kröfu sína með sátt eða á
annan hátt. Ef fleiri menn en einn hafa verið ærumeiddir
með sömu ummælum eða sömu athöfn, getur hver um sig
auðvitað einungis gefið upp sína sök. Þó að maki látins
manns t. d. gæfi sök upp fyrir sitt leyti, sbr. 25. og 240. gr.
hegnl., þá gætu aðrir aðiljar allt að einu rekið síns réttar.
Sönnunarbyrði um uppgjöf sakar hvílir í einkamáli auðvitað
á varnaraðilja. 1 opinberu máli mundi dómari rannsaka það
atriði sem önnur, en ákærði mundi því aðeins njóta hags af
þeirri varnarástæðu, að sannanir fengjust um hana. Ef
uppgjöf sakar er sönnuð, þá leiðir það auðvitað til sýknu
af refsikröfu.
Samkvæmt 4. tölul. 74. gr. og 75. gr. hegningarlaganna
getur það komið varnaraðilja til linkindar eða jafnvel
niðurfellingar refsingar, ef hann hefur framið brot í mik-
illi reiði eða geðæsingu, sem sá, sem fyrir broti varð, hefur
vakið hjá honum með ólögmætri árás eða móðgun, eða
brotamaður hefur framið brot annars í ákafri geðshrær-
ingu eða vegna skammvinns ójafnvægis á geðsmunum.
Þessi almennu ákvæði taka og til ærumeiðinga. 4. tölul.
74. gr. kemur því að eins til greina, að árás eða móðgun —
gagnvart brotamanni eða öðrum, sem hann tekur sárt til —
megi telja orsök eða að minnsta kosti samorsök þess, að
brot var framið. Hins vegar þarf sú árás ekki að vera fólgin
í ærumeiðingu. Hún gæti t. d. verið fólgin í líkamsárás,
frelsisskerðingu o. s. frv. Aftur á móti þarf ekkert sam-
band að vera milli geðæsingar brotamanns samkvæmt 75.
gr. og háttsemi þess, sem fyrir broti verður. Annars mun
mega segja, að ástæður þær, sem taldar eru í 74. gr. til
linkindar varnaraðilja komi til greina í málum vegna æru-
i) Sbr. Dótaasafn I. 164, X. 133.