Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.1952, Page 46

Tímarit lögfræðinga - 01.09.1952, Page 46
166 Tímarit lögfrœðinga máli ærumeiðing sóknaraðilja í garð varnaraðilja skipti um sök ins síðarnefnda, en alls elckert um það, hvort æru- meiðing sóknaraðilja í garð varnaraðilja kunni að eiga að baka sóknaraðilja ábyrgð. Með sama hætti gæti varnar- aðili í einkamáli fengið leyst úr því í öðru einkamáli, hvort sóknaraðili fyrra málsins skuli sæta ábyrgð fyrir ærumeið- ingar, sem hafðar voru til varnar í því máli samkvæmt 239. gr. hegnl. Dómara er einungis „heimilt’‘ að láta refsingu falla niður,1) ef fullnægt er ákvæðum 239. gr., enda er sams- konar heimild í niðurlagi 74. gr. og í 75. gr. hegnl. Ef aðalsök er og gagnsök, sbr. hér að framan, þá má nota heimildina þannig að refsing beggja verði felld niður eða að annar veroi látinn sæta refsingu, en refsing hins verði felld niður. tJr því að heimilt er að fella niður refsingu, þá hlýtur dómara því fremur að vera heimilt að lækka refs- ingu, ef skilyrðum 239. gr. (eða 4. tölul. 74. gr. eða 75. gr. hegnl. að því leyti sem þau kynnu að eiga við) er fullnægt.2) 1 opinberurn málum samkvæmt 97. og 105. eða 108. gr. hegnl. verður refsing lækkuð eða ef til vill felld niður einungis eftir almennu ákvæðunum í 74. eða 75. gr. hegnl., því að 239. gr. mun ekki taka til annarra mála en þeirra, sem höfðuð eru samkvæmt 242. gr. 2. b. og c. og 3. sem sagt var. Áður var þess getið, að sóknaraðilja (eða ákæruvaldinu, ef mál er opinbert) beri að sanna það, að varnaraðili hafi framið þá ærumeiðingu, sem honum er gefin að sök. Hér skal athuga það í fyrsta lagi, hvort heimilt sé að leiða sönn- ur að því, að aðili hafi framið þær athafnir eða athafna- leysi eða sé sá maður, er þá lýsingu eigi skilið, sem æru- meiðandi tileinkaði honum, lýsingu, sem beinist að hugar- fari hans eða mannkostum. Þessar ærumeiðingar teljast til hugtaksins „aMrótturí'. 1 þann flokk kemur áburður um athafnir eða athafnaleysi og einstök orð, sem fela í sér bendingu um skort á mannkostum í einhverja átt eða al- mennt, t. d. trassi, þjófur, lygari, fantur o. s. frv. Eftir 1) Sbr. Dómasafn VI. 658. 2) Sbr. Dómasafn VIII. 34.

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.