Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.1952, Page 54

Tímarit lögfræðinga - 01.09.1952, Page 54
174 Tímarit lögfræOinga ærumeiðir réttlætt aðdróttun sína, og verður hann þá refsi- laus, enda hafi hann hagað orðum sínum sæmilega og að- eins leitt réttar ályktanir af aðdróttunum sínum, ef þær reyndust réttlætanlegar.1) En venjulega hefur það verið svo, að ærumeiðir hefur vafið aðdróttun óhæfilegum um- búðum, ýkt ávirðingar ins meidda eða leitt allskostar ó- heimilar ályktanir af réttlætanlegri aðdróttun, og þá stoð- ar sönnun alls ekki til sýknu. Þó að t. d. dómari telji sannað, að opinberum starfsmanni hafi eitthvað orðið á í starfi sínu, þá verður varnaraðili að sæta refsingu, ef iýsing hans á þeirri ávirðingu eða þeim ávirðingum hefur verið ýkjum blandin, orð um þær hafa verið óhæfilega hörð eða óvirðandi eða óheimilar ályktanir hafa verið leiddar af réttlættri eða réttlætanlegri aðdróttun. Eru mörg dæmi slíks í dómum. En vitanlega getur mat á þessum atriðum stundum verið vandasamt.2) Það orkar venjulega eigi refsileysi, þó að ærumeiðandi ummæli helgist af misskilningi á gögnum.3) Trú á það, að aðdróttun sé sönn eða trú eða vissa um það, að hún verði sönnuð, leysir ekki heldur undan refsingu. Hefur ekki verið vafi um það, að þetta sé rétt, enda naumast borið fram í dóm í málum um ærumeiðingar. Ákvæði 1. málsgr. 236. gr. hegnl. virðast reist á þeim grundvelli, að bona fides orki ekki refsileysi. Það, að male fides orkar refsihækkun, sýn- ist fremur benda til þess, að bona fides valdi ekki refsi- leysi. Ákvæði 2. málsgr. 236. gr. leggur hærri refsingu við opinberri birtingu aðdróttunar, enda þótt sakaráberi hafi ekki sennilega ástæðu til að halda hana sanna. 1 þessu felst það ekki, að aðdróttun, sem opinberlega hefur verið birt, verði réttmæt, þó að sakaráberi hafi haft sennilega ástæðu til að halda hana sanna, heldur er þetta huglæga atriði skil- yrði refsihækkunar samkvæmt 2. málsgr. 236. gr. Ef sakar- áberi telst hafa haft sennilega ástæðu til þess að halda að- 1) T. d. Dómas. VII. 300. 2) Sbr. t. d. Dómas. V. 482, VH. 60, 126, 129, sbr. 406, VIII. 1, Hrd. VI. 461, VIII. 100, XXL 79. 3) Sbr. t. d. Dómas. VIII. 528.

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.