Tímarit lögfræðinga - 01.10.1956, Blaðsíða 59
FRÁ HÁSKÓLÁNUM.
Nýir kennarar í viðskiptafræðum. Dr. Gylfi Þ. G>rsla-
son prófessor tók við starfi menntamálaráðherra, er hin
nýja ríkisstjórn tók við völdum. Ber að fagna því, að mað-
ur frá Háskólanum skuli hafa það starf með höndum. Yið
kennslu hans hafa tekið um sinn þeir dr. Jóhannes Nordal,
er kennir almenna rekstrarhagfræði, Guðlaugur Þorvalds-
son, cand. oecon., er kennir sérgreinda rekstrarhagfræði
og Þorvarður Jón Júlíusson, cand. polit., er kennir bók-
færslu.
Frumvarp að nýjum háskólalögum er komið fram á
Alþingi. Frumvarpið er undirhúið af nefnd liáskólakenn-
ara þeirra Ármanni Snævarr, Finnboga R. Þorvaldssyni,
Steingrími J. Þorsteinssyni, Birni Magnússyni og Júliusi
Sigurjónssyni.
Formaður nefndarinnar var dr. Benjamin Eiriksson.
Um frv. hafa og fjallað deildir Háskólans, Háskólaráð og
Stúentaráð. Undirbúningur hefir tekið alllangan tíma —
ca. 2 ár. Nokkrar breytingar mun menntamálaráðherra
hafa gert á frv. áður en hann lagði það fram.
Frv. liefir ýmsar brevtingar og nýmæli að geyma, er
til bóta horfa. Aðrar eru umdeilanlegri og verður e. t. v.
siðar vikið að frv. þessu.
Verðlaunaritgerð í lögfræði. Ástæða er til þess að minna
laganema og lögfræðinga }rngri en 35 ára á verðlaun
þau, að upphæð kr. 5.000, sem Laga- og hagfræðideild
Háskólans hefir heitið fyrir ritgerð um: „Réttarreglur
um sérstaka sameign“. Nánar er skýrt frá skilyrðum og
efni í II. h. bls. 127.
Ritgerðum skyldi skilað fyrir 1. sept. 1957, en frest-
urinn hefir verið framlengdur til 1. jan. 1958
HANDRITAMÁLIÐ. Þegar verið er að ganga frá þessu
hefti, harst mér í hendur Ugeskrift for Retvæsen — 19. h.
1957 — (hið danska lögfræðitímarit, sem allir íslenzkir
lögfræðingar munu þekkja). Þar skrifar dr. Alf Ross,
Tímarit lögfrœöinga
249