Tímarit lögfræðinga - 01.01.1972, Síða 37
Á víð og dreif
Frá Hæstarétti.
Dr. jur. Ármann Snævarr hefur verið skipaður hæsta-
réttardómari, er sæti Gizurar Bergsteinssonar losnaði.
Öþarfi er að kynna Ármann Snævarr íslenzkum lögfræð-
ingum, enda er mikill fjöldi þeirra lærisveinar hans, því
að hann hefur gegnt prófessorsstöðu við lagadeild Há-
skólans síðan 1. sept. 1948 og látið sig málefni dcildarinnar
miklu skipta. Hann hefur og verið rektor Háskólans árum
saman, séð um útgáfu „Lagasafns“ og ritað margt um
lögfræðileg efni, svo eitthvað sé nefnt.
Sigurður Líndal hæstaréttarritari hefur verið skipaður
prófessor í lögum, eins og vikið er að liér á eftir. Stöðu
hans hefur ekki verið ráðstafað enn, svo vitað sé.
Frá Háskólanum.
1. Hús lagadeildar.
Kennsla hefur farið fram í húsi lagadeildar síðan s.l.
haust. Þá má gera ráð fyrir, að á næstunni verði unnt að
taka húsið til annarra fyrirhugaðra nota, þar á meðal
lestrarsali stúdenta og kennaraherbergi.
2. Nýr prófessor.
Á s.l. ári var stofnað og veitt fé til nýs prófessorsem-
bættis í lögfræði. Hefur Sigurði Líndal, hæstaréttarritara,
verið veitt embætti þetta frá 15. febrúar 1972 að telja, en
Sigurður hefur undanfarin ár gegnt lektorsstarfi við laga-
deild. Réttarsaga er aðalviðfangsefni hins nýja prófessors.
3. Rannsóknastofnun um fjölskyldui'étt og fjölskyldu-
málefni.
Timarit lögfræðinga
35