Tímarit lögfræðinga - 01.07.1975, Qupperneq 11
Jóhannes Skaftason og Þorkell Jóhannesson:
ÁKVARÐANIR Á ALKÓHÓLI (ETANÓLI) í BLÓÐI
Ákvarðanir á alkóhóli (etanóli) í blóðsýnum, er tekin eru úr farþeg-
um og ökumönnum vegna gruns um brot á umferðarlögum, hófust í
Rannsóknastofu í lyfjafræði 1. 9. 1972. Með því að við þessar rannsókn-
ir er notuð önnur tækni, gasgreining á súlu, en áður tíðkaðist, þótti
rétt að kynna lögfræðingum helstu atriði þessarar aðferðar og skýra
frá í yfirlitsformi niðurstöðutölum alkóhólákvarðana þessara fyrsta ár-
ið, þ.e.a.s. á tímabilinu 1. 9. 1972 — 31. 8.1973.
Orðið alkóhól (eintala) er í þessari ritgerð látið tákna etanól, nema
annars sé sérstaklega getið. Orðið þéttni er látið tákna „koncentration“
alkóhóla í lausnum (1 %0 o.s.frv.). Þégar betur þykir á fara, er ritað
magn í stað þéttni (t.d. magn etanóls í blóði var í%0 o.s.frv.).
Aðferðarlýsing
Aðferð sú til ákvörðunar á alkóhóli (etanóli), sem notuð er í Rann-
sóknastofu í lyfjafræði, byggist á mismunandi leysanleika alkóhóla í
fínkornóttu gerviefni, Chromosorb 102, sem er fjölefnungur stýrendí-
vínýlbenzens. Eru rör úr stáli, oftast nefnd súlur, fyllt með þessu efni.
Köfnunarefni (A 48, Alfax, 99,995% hreint) er blásið gegnum súlu
þessarar gerðar við 140°. Ef vatnslausn, er inniheldur blöndu af alkó-
hólum, er sprautað inn í súluna (til þess eru notaðar nákvæmnisspraut-
ur af gerðinni „Precision Sampling", er taka 10 míkról), flytur köfn-
unarefnið vatn og hin ýmsu alkóhól í gegn í loftkenndu formi, en mis-
hratt végna mismunandi leysanleika þeirra í gerviefninu. Vatn kemur
fyrst i gegn, þá metanól (tréspíritus), því næst etanól (alkóhól), n-
própanól o.s.frv. Við útblásturinn úr súlunni (hinn enda súlunnar) er
efnagreinir, er greinir lofttegundir, svokallaður blossagreinir, sem er í
sambandi við rita, er ritar bylgju (topp), þegar alkóhól koma í grein-
inn. Stærð (eða hæð) toppsins, er ritinn ritar, er í réttu hlutfalli við
magn þess eða þeirra alkóhóla, er koma í greininn. Dæmi um slíka
5