Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.07.1975, Side 14

Tímarit lögfræðinga - 01.07.1975, Side 14
MYND 2. Myndin sýnir tækjasamstæðu í þrennu lagi til gasgreiningar á alkóhólum. Vinstra megin er sá hluti samstæðunnar, er hefur að geyma ofn með súlu, sem hituð er í 140°, og blossagreini. Neðanvert við miðju má sjá stúta þar, sem sýnum er sprautað í súl- una. A miðri mynd sést sjálft stjórntækið, er stýrir loftstreymi um súlu og blossa- greini og tekur við straumsveiflum frá blossagreini, magnar þær og sendir til ritsns, sem er yst til hægri á myndinni. Tækjasamstæða þessi er keypt frá Beckman Inc. inni að gasgi’eininum og etanólmagn sýnisins þarf að vera yfir vissu lágmai’ki til þess að greinirinn geti greint það (mynd 3). Jafnan, sem notuð er við útreikningana, lítur því þannig út: (R + a) Etanólmagn — ------------------- k k og a eru reikningsstuðlar, sem fundnir eru fyrir hverja fullbúna súlu, á grundvelli tilraua með samanburðarlausnir, sem gerðar eru dag hvern, þegar etanól er ákvarðað (sbr. að framan). k er hallatala línunnar, en a er leiðréttingarstuðull, er nota þarf, þar eð línan liggur ekki gegnum núllpunkt, sbr. mynd 3. Athuganir á dreifingu niðurstöðutalna einstakra alkóhólákvarðana sýndu, að staðlað frávik (S.D.) frá miðtölugildi var á bilinu 2—3% (sbr. mynd 3). Ef miðað er við ,að notuð séu 99% vikmörk, er svarar til þriggja staðlaðra frávika, eins og tíðkað er víða erlendis (Machata 1972, Curry 1972), má ætla, að niðurstöðutölur geti mest vikið 10% frá réttu gildi. Svarar það til þess, að sýni, er að réttu lagi inniheldur 1,20%c etanól, gæti mælst á bilinu 1,08—1,32%C. Á hinn bóginn má skoða það sem viðtekna venju að ætla vikmörk niðurstöðutalna ákvarðana á blóðsýnum úr lifandi mönnum, sem eru 1%0 eða lægri, ætíð hin sörnu, þ.e.a.s. 0,10%c, sbr. Hrd. 1966 bls. 2, sbr. einnig Curry (1972). Sam- kvæmt þessu telst svo til, að sýni, er að réttu lagi inniheldur 0,50%o etanól í blóði, gæti mælst á bilinu 0,40%o — 0,60%o. Svipuð vikmörk hafa 8

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.