Tímarit lögfræðinga - 01.07.1975, Síða 18
Fjöldi sýna
MYND 4.
Myndin sýnir fjölda blóðsýna, er tekin voru úr ökumönnum og farþegum, til ákvörð-
unar á alkóhóli. Sýnum er skipt í 7 hópa eftir þéttni alkóhóls í blóði, sbr. texta.
sinni til tvisvar í viku og sj aldgæft er, að sýni bíði meira en 3—4 daga í
Rannsóknastofunni, áður en alkóhól er ákvarðað. Sýni, sem ekki eru
rannsökuð samdægurs og þau berast, eru geymd í kæliskáp.
Augljóst er, að miklar sveiflur voru í fjölda þeirra sýna, er rannsökuð
voru á hverjum mánuði. Þannig voru ekki rannsökuð nema 107 sýni í
desember 1972, en fjöldi sýna komst hins vegar í 253 í ágúst 1973. At-
hyglisvert er enn fremur, að fjöldi sýna þrjá fyrstu mánuði ársins 1974
er innan við 170 á mánuði, en hækkar í nærri 240 í apríl sama ár og
helst yfir 200 í maí og júní.
UmræSa og ályktanir
Aðferð þá, er hér ræðir og hefur á íslensku verið nefnd gasgreining
á súlu (gas chromatography = gasgreining á súlu), má nota jafnt til
þess að ákvarða etanól (eða önnur alkóhól) í blóði, þvagi eða öðrum
12