Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.07.1975, Side 32

Tímarit lögfræðinga - 01.07.1975, Side 32
það ræddi dómari einslega við lögmann stefnda og innti hann eftir því, hvað hann gæti hugsað sér að sættast á og reyndi að þrýsta honum nið- ur með fortölum. Síðan ræddi dómarinn á sama hátt við lögmann stefnda. I þessum viðræðum talaði dómarinn mjög frjálslega við lög- mennina og sagði þeim hiklaust, hvernig hann teldi að málið ætti að fara. Eftir að hafa rætt einslega við lögmennina sitt í hvoru lagi, kall- aði hann þá báða fyrir sig og setti fram sáttatillögu. Venjulega tóku dómararnir þannig fyrir 4 mál fyrir hádegi. Var algengt, að þeim tæk- ist að sætta þrjú mál af fjórum. Og það voru engin smámál, oft skaða- bótamál upp á mörg hundruð þúsund dollara. Ég var t.d. viðstaddur sáttafund í Fíladelfíu, þar sem dómari sætti slysamál, þar sem samið var um 365 þús. dollara. Og það tók hann um 15 mínútur. Af þessu má sjá, að þessar sáttatilraunir dómara gegna mjög þýðingarmiklu hlut- verki til að hraða afgreiðslu dómsmála. Dáðist ég mjög að þeim árangri, sem dómarar ná í þessum efnum. Ef sáttatilraun mistekst, er öðrum dómara falið að dæma málið en þeim, sem gerði sáttatilraunirnar. Mér duldist það ekki, að íslenskir dómarar eru miklir eftirbátar kolleganna í Bandaríkj unum á þessu sviði. Dómararnir þar eru langt um ýtnari í sáttatilraunum en við, og lögmennirnir bandarísku eru sáttfúsari en kollegar þeirra hér á landi. Hvað veldur? Ég veit það ekki, en það veit ég af eigin reynslu, að oft mistakast sáttatilraunir vegna ágreinings um málskostnað. 1 Bandaríkjunum er þetta ekki vanda- mál, því að þar greiðir hvor aðili sínum lögmanni, hvernig sem málið fer. Og málskostnaður í Bandaríkjunum er enginn smáskildingur. Það er algengt í slysamálum, að lögmenn taki að sér mál „On Contingent basis“. En það merkir, að þeir fá ekkert ef mál tapast, en hluta af því sem vinnst, oftast einn þriðja hluta. Ef tildæmd fjárhæð er t.d. 600 þús. dollarar, verður málflutningsþóknunin 200 þúsund dollarar. Eitt er það fyrirbrigði í bandarísku réttarfari, sem ég verð að minn- ast á, það kallast „Depositions“. Það eru yfirheyrslur, sem lögmenn halda og sjá um sjálfir án dómara. Þær fara yfirleitt fram í skrifstofum lögmanna, og er þeim beitt til að tryggja sönnunargögn til nota í dóms- máli síðar, t.d. í þeim tilvikum, þegar vitað er fyrirfram, að vitni ber ekki vitnaskyldu í tilteknu máli végna fjarlægðar frá heimili vitnis til þingstaðar. Framkvæmd þessara yfirheyrslna er venjulega þannig, að lögmenn aðilja koma sér saman um stað og tíma, þeir ráða sér hraðritara, sem löggiltur er til að eiðfesta vitni og taka niður framburð á hraðritunar- vél. Síðan fer réttarhaldið fram með venjulegum hætti, spurningum og gagnspurningum. Ef fram koma mótmæli við spurningu, er enginn 26

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.