Tímarit lögfræðinga - 01.07.1975, Síða 37
Frá
La adeild
lláskólans
DEILDARFRÉTTIR
1. Nýskipan laganáms
Háskólaárið 1974—1975 var 5. og síðasta námsár fyrsta stúdentsárgangs-
ins, er stundar laganám eftir reglugerðarákvæðum þeim, sem tóku gildi á ár-
inu 1970, (sbr. auglýsingu nr. 81/1970 um staðfestingu forseta íslands á breyt-
ingu á reglugerð nr. 76/1958 fyrir Háskóla islands, og nú augl. nr. 63/1975).
Um nýmælin, sem felast í auglýsingu þessari má lesa í grein prófessors Þórs
Vilhjálmssonar „Breytingar á laganámi" í Úlfljóti 1970, bls. 251—262. Eins
og þar kemur fram skiptist laganám nú i 3 hluta. Ætlast er til, að stúdentar
Ijúki 1. hluta prófi eftir tveggja ára nám, 2. hluta prófi eftir fjögurra ára nám
og 3. hluta prófi (sem jafnframt er lokapróf) eftir 5. námsárið í deildinni.
Fyrstu 4 námsárin er náms- og prófsefni nemenda hið sama, en á 5. ári gefst
stúdentum kostur á að velja sér námsgreinar. Valfrelsi stúdenta er tvíþætt. I
fyrsta lagi er stúdent skylt að velja tvær af svonefndum bundnum kjörgreinum,
en þær eru alls tíu. í öðru lagi skal stúdent skjósa sér eina aðalkjörgrein
(aðalkjörsvið). Er stúdent alveg óbundinn um, hvaða námsgrein í lagadeild
hann velur. Nám í aðalkjörgreinum er æskilegt að hefja sem fyrst, en á
háskólaárinu 1974—1975 byrjuðu stúdentar almennt ekki að fást við aðalkjör-
grein sína, fyrr en að loknum prófum í bundnum kjörgreinum.
Á deildarfundi 8. marz 1974 setti lagadeild, skv. heimild í reglugerð, sér-
stakar reglur um kjörnám stúdenta á 5. ári. Kennsla í bundnu kjörgreinunum
hófst í byrjun október 1974 og lauk almennt í byrjun desember með munnlegu
prófi. Sérstakur kennari hefur umsjón með hverri kjörgrein, en algengt er,
að fleiri en einn kennari annist kennslu og leiðbeiningar í hverri grein. Kenn-
arar í félagarétti voru Hjörtur Torfason hrl., Páll Skúlason bókavörður og
borgardómararnr Hrafn Bragason og Stefán Már Stefánsson. Kennari í hag-
fræði var Helgi V. Jónsson borgarendurskoðandi. Opinbera stjórnsýslu kenndi
Ásgeir Thoroddsen hagsýslustjóri auk umsjónarkennara. Auk umsjónarkenn-
ara í skattarétti kenndu þá grein Bergur Guðnason cand. jur., Guðmund-
ur Magnússon prófessor í viðskiptadeield, Lúðvík Ingvarsson prófessor, Guð-
mundur Vignir Jósefsson gjaldheimtustjóri og Páll Skúlason bókavörður. Að-
sókn að bundnum kjörgreinum var mismunandi mikil. Fara hér á etfir nöfn
umsjónarkennara og fjöldi stúdenta í hverri grein haustið 1974:
31