Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.07.1975, Page 42

Tímarit lögfræðinga - 01.07.1975, Page 42
endurskoða frumvarpið með tilliti til þeirra athugasemda, sem fram höfðu komið. Nefnd þessa skipuðu Ingimar Sigurðsson stjórnarráðsfulltrúi og alþingismennirnir Ellert B. Schram og Halldór Ásgrímsson. Skyldi sú nefnd endurskoða frumvarpið með hliðsjón af tveimur meginatriðum: 1) að nauð- synleg væri ný löggjöf, þar sem lögin frá 1935 og 1938 væru löngu orðin úrelt og ófullnægjandi. 2) að mögulegt yrði að gera frumv. að lögum á þessu nýafstaðna þingi. Þessu endurskoðaða frumvarpi var síðan vísað til þingnefnd- ar, sem gerði nokkrar breytingatillögur. Meginbreytingin, sem gerð var í þessu endurskoðaða frumvarpi, var sú breyting, sem gerð var á 9. gr. upphaflega frumvarpsins. Skyldi fóstureyðing nú heimil af vissum félagslegum ástæðum og af læknisfræðilegum ástæðum, en ákvæðið um, að fóstureyðing yrði heimiluð eingöngu að ósk konu, var fellt niður. Til þess að aðgerð geti farið fram, verður að liggja fyrir greinargerð tveggja lækna,, sé um að ræða fóstureyðingu af læknisfræðilegum ástæðum, en greinargerð læknis og félagsráðgjafa, sé um að ræða fóstureyðingu af félagslegum ástæðum. Skv. þessu getur aðgerðarlæknir synjað um fóstur- eyðingu, sjái hann enga frambærilega ástæðu fyrir nauðsyn aðgerðar. Telji konan úrskurð læknisins rangan, getur hún áfrýjað honum til nefndar þriggja manna, sem úrskurðar ágreiningsefnið innan viku. Með þeim breytingum, sem heilbrigðis- og trygginganefnd neðri deildar gerði á frumvarpinu, var það samþykkt á Alþingi, og eru nú gildandi lög nr. 25/1975. Við gildistöku lagannan féllu niður I. nr. 38/1935 og I. nr. 16/1938. Hinsvegar munu þó ákvæði 1.16/1938 um afkynjanir halda gildi sínu. Kristjana Jónsdóttir. NORRÆNT HÖFUNDARRÉTTARÞING í FINNLANDI í hinu nýja og glæsilega menningarsetri Finna og Svía, Hanaholmen við Helsingfors, var dagana 9.—11. júní sl. haldið fjölmennt þing um höfunda- réttarmál, hið fyrsta, sem haldið hefur verið á Norðurlöndum. Frumkvæði að þinghaldi þessu áttu höfundaréttarfélögin i Svíþjóð, Finnlandi, Noregi og Dan- mörku, en hið finnska félag sá um allan undirbúning og framkvæmd. Auk fjölmenns hóps fulltrúa frá öllum Norðurlöndunum fimm sóttu þingið fjöldi erlendra gesta, þ. á m. frá Bandaríkjunum og Sovétríkjunum, svo og sendimenn frá hinum ýmsu alþjóðastofnunum, sem fara með höfundaréttarmál. íslensku höfundaréttanefndinni hafði verið boðið til þingsins, en hana skipa dr. Gaukur Jörundsson prófessor, sem er formaður nefndarinnar, prófessor Þór Vilhjálmsson, Björn Bjarman rithöfundur, Knútur Hallsson skrifstofustjóri og Sigurður Reynir Pétursson. Nefnd þessi er menntamálaráðherra til ráðu- neytis um höfundaréttarmál skv. 58. gr. hinna nýju höfundalaga frá 29. maí 1972. Þingið, sem stóð, eins og að framan getur, í þrjá daga, var að mínum dómi mjög gagnlegt og ánægjulegt. Margt merkt og áhugavert kom þar fram og umræður urðu á stundum fjörugar og heitar, þar sem skoðanir manna féllu eigi ávalt í einn og sama farveg. Einkum átti þetta við um umræður síðasta daginn, er rætt var um grundvallarrök höfundaréttarins og hlutverk hans og þýðingu í nútíma þjóðfélagi. Umræðum þennan dag stjórnuðu af röggsemi 36

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.